157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:13]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég vil fá að taka undir með hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Við erum að ræða grásleppumál sem er ekki tilbúið þegar við erum búin að fá fréttir um það í dag að íslensk heimili séu að fara að bera marga milljarða á herðunum til viðbótar, sem er risamál. Þetta er risamál og það er eins og að skvetta vatni á gæs með stjórnarliðana. Þeir trúa því enn þá að þeir séu með einhverjar sleggjur og plön. Það eina sem þeir gera er að berja almenning í andliti með þessari sleggju. Við eigum að fara að ræða þetta. Þetta eru brýn mál. Það er ekkert sem bendir til þess að neitt sé að fara að lagast í þessum efnum. Við verðum að fá tíma til að ræða þetta, frú forseti.