útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég ítreka enn og aftur að forgangsröðunin á þessu máli er með öllu óskiljanleg. En af því að undir fundarsköpum á að ræða formsatriði í grunninn vil ég bara líka benda á að í II. kafla frumvarpsins, út af grásleppunni, á að fella niður tilteknar greinar úr lögum um stjórn fiskveiða, sem eru nr. 116/2006. Þar á meðal er 7. mgr. 8. gr., 6. mgr. 12. gr. og a-liður 7. gr. í lögunum. Það er ekkert mat sem liggur þó fyrir á réttaráhrifum þess að fella þessi ákvæði brott úr lögum um stjórn fiskveiða. Það er ekkert búið að skoða það fyrir nefndinni. Þetta eru grundvallarreglur í lögum um stjórn fiskveiða sem þarna eru undir, engin málsmeðferð um það. Þannig að, virðulegur forseti, ég tel ekki bara fullt heldur allt tilefni til þess að endurskoða dagskrá þingsins, taka þetta frumvarp og leggja það aftur fyrir nefndina.