157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:18]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég bið yður að afsaka að ég skuli koma hér upp öðru sinni en mér finnst ég þurfa að ítreka spurningu mína til hæstv. forseta: Hvað gengur mönnum til með þeirri sérkennilegu hugmynd að þrýsta á um að farið verði að ræða grásleppu á þessum degi? Ég geri ekki lítið úr grásleppunni, hún er fallegur fiskur, kannski ekki með þeim fallegustu en góður fiskur, bragðgóður og skiptir máli fyrir atvinnu þeirra sem reiða sig á slíkar veiðar. En eftir því sem ég kemst næst er hér um að ræða þingmannamál um að kollvarpa því fyrirkomulagi sem hefur verið á þessum veiðum. Þetta virðist vera gert með samþykki og vilja forseta og þess vegna spyr ég: Hvers vegna? Ég set ekki út á að við fáum hér góðan tíma til að ræða útlendingamálin. Ég tel það mjög mikilvægt. En ég held að við ættum líka að halda hér það sem kalla mætti neyðarumræður um stöðu efnahagsmála eftir nýjustu tíðindi af þeim og því ítreka ég spurningu mína, frú forseti: Hvað gengur mönnum til með þessari forgangsröðun og eru menn reiðubúnir til að endurskoða hana?