útlendingar.
Virðulegur forseti. Það er full ástæða fyrir hv. þingmenn til að velta fyrir sér forgangsröðuninni hér í upphafi vorþings. Það er ekki eins og menn séu komnir í tímaþröng með að afgreiða mál. Fundarfall er ítrekað í nefndum, einkum og sér í lagi hv. atvinnuveganefnd, sem boðaði fundarfall tvisvar. Tveir síðustu fundir féllu niður vegna verkefnaskorts. Þess vegna skýtur það skökku við að menn heykist á að verða við frómum óskum nokkurra þingmanna um að mál, sem er boðað hér á dagskrá um grásleppu, fari aftur inn í nefndina til aðeins örlítið meiri umræðu, eins og menn hafa óskað eftir frá upphafi, frá því að málið var lagt fram. Hér eru önnur mál líka áhugaverð sem ég veit að margir hv. þingmenn bíða eftir að fá að ræða, m.a. framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026–2029. En nei, menn setja þingmannamál um grásleppu ófullbúið frekar á dagskrá og forðast að ræða framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum, augljóslega.