157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:22]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að ræða þetta frumvarp um breytingar á lögum um útlendinga og afturköllun alþjóðlegrar verndar. Ég get tekið undir með flestum þeim sem hér hafa talað á undan mér að það er klárlega skref í rétta átt í þessum málaflokki sem við höfum svo mikið og oft rætt hér í þessum stól og þessum sal. Ég held að flestum hafi verið orðið það ljóst á síðasta kjörtímabili að menn voru komnir nálægt því að missa stjórn á þessari atburðarás og þessum málaflokki. En sem betur fer tókst mönnum með breytingu á lögum þá að skerpa á og staðan í dag er orðin allt önnur en hún var. Þetta frumvarp er klárlega skref í rétta átt hvað það varðar.

Það var rætt hér áðan um að hafa stjórn á landamærunum. Ísland er nú bara í mjög eftirsóknarverðri stöðu varðandi sín landamæri. Ég man eftir því í mínu fyrra lífi sem lögreglumaður, þar sem ég starfaði m.a. við greiningardeild ríkislögreglustjóra og fór á fundi kollega minna á Norðurlöndunum, að við vorum öfunduð af því að landamæri Íslands væru að stærstum hluta 4 m gangur, ólíkt því sem gerist eiginlega alls staðar annars staðar í Evrópu. Þannig að verkefnið varðandi landamærin ætti að vera okkur hvað auðveldast af þeim löndum sem við lítum til og höfum borið okkur saman við. Það skiptir máli að við höfum þessa stjórn og við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að efla hana og þá starfsemi sem þar er.

En um hvað snýst þetta frumvarp, virðulegur forseti? Jú, þetta snýst um að þeim sem hafa gerst brotlegir hér við lög og hafa sótt um alþjóðlega vernd verði vísað brott af landinu. Ég verð að segja að mér finnst þetta bara mjög eðlileg krafa. Við erum að taka á móti fólki sem kemur hingað til lands til okkar og sækir um alþjóðlega vernd. Við erum að styðja við bakið á þessu fólki fjárhagslega og það er bara eðlileg krafa og á að vera eðlileg krafa að þetta fólk virði íslensk lög og íslenskt velsæmi. Það hefur verið rætt hér t.d. um skipulagða glæpastarfsemi í þessu samhengi og því miður eru merki um að það séu nú tengsl þarna á milli. Ég er algerlega sammála þeirri grunnhugsun sem kemur fram í þessu frumvarpi um að gerist menn brotlegir við íslensk lög sé í raun og veru næsta skref að afturkalla verndina.

Virðulegur forseti. Ég skal viðurkenna að ég hef ekki náð að hlusta á alla umræðuna, allar ræður. Það er samt einn punktur sem mig langar að koma inn á. Virðulegur forseti og þingheimur verða þá bara að afsaka það ef þetta hefur komið hér fram í einhverri ræðu áður. Það varðar þau skilyrði sem við höfum verið að ræða sem þurfa að vera fyrir hendi þannig að afturköllun geti átt sér stað, hvaða lagabálkar eða hvaða brot eigi að heyra þar undir, hversu alvarleg og hversu ítrekuð. Þá langar mig bara að minna á það og benda á að í mínu fyrra starfi sem yfirlögregluþjónn fékk ég reglulega bréfasendingar frá ríkislögreglustjóraembættinu þar sem okkur var falið að veita umsögn varðandi ríkisborgararétt, fólk sem var að sækja um íslenskan ríkisborgararétt. Þar voru ákveðin skilyrði sett hvað varðar veitingu á ríkisborgararétti. Ef þessir einstaklingar höfðu gerst brotlegir við þau lög sem miðað var við varðandi ríkisborgararéttinn var þeirri beiðni annaðhvort einfaldlega synjað eða seinkað.

Ég velti fyrir mér, virðulegur forseti, í þessari umræðu allri saman, hvort inni í nefndinni eða hér í þingsal hafi menn skoðað þessa hluti, að nota þau viðmið sem við höfum í raun og veru í dag varðandi veitingu á ríkisborgararétti sem einhvers konar grunnviðmið eða sambærileg þeim sem við notum hér varðandi afturköllun alþjóðlegrar verndar. Það væri alla vega þess virði að skoða það, virðulegur forseti, hvort þarna gæti verið einhvers konar einföldun, að við séum þá bara með eitt kerfi í staðinn fyrir að búa hér til annað. Þó að málið sé vissulega ekki það sama er það svipað. Ef skilyrðin eru til held ég að það væri alveg þess virði að skoða hvort við ættum að hafa þau hér til viðmiðunar.

Umræðan hér um þessi mál hefur náttúrlega, eins og er kannski eðlilegt þegar við ræðum hér um lög um útlendinga, farið um víðan völl enda er þetta gríðarlega stór og viðamikill málaflokkur.

Ég verð nú að segja að mér hefur stundum fundist umræðan kannski ekki alveg á réttum slóðum í þessu og hef velt því fyrir mér, og það á ekki bara við í umræðunni hér á Alþingi, virðulegur forseti, heldur líka í samfélaginu, hvort það væri þess virði að skoða það sömuleiðis að reyna einhvern veginn að kljúfa þessa lagabálka í sundur, annars vegar varðandi útlendinga og hins vegar hælisleitendur vegna þess að þetta er algerlega sitthvort viðfangsefnið. Við höfum verið að tala hér um vandamál varðandi útlendinga og þetta kemur þannig fram í umræðu að við séum að ræða um útlendinga þegar við erum í raun og veru að ræða um hælisleitendur. Það er algerlega sitthvor hluturinn að mínu viti. Íslenskt hagkerfi þarf svo sannarlega á vinnuafli að halda, við þurfum á þessu vinnuafli að halda, hvort sem það er — ég ætla ekki að fara að telja upp hér allar atvinnugreinarnar sem reiða sig á erlent vinnuafl og það er vandséð hvernig við kæmumst áfram án þess. Auðvitað er einhvers staðar eitthvert þak, ég geri mér grein fyrir því, virðulegur forseti, en mér finnst þessi umræða oft óvægin gagnvart útlendingum, sem á í raun og veru við um hælisleitendur. Ég velti fyrir mér hvort það væri vert að skoða að skipta þessu upp þannig að umræðan færi á þann stað þar sem hún á heima.

En ég ætla svo sem ekkert að hafa þetta mikið lengra. Mig langaði bara að koma hér upp og fagna þessu frumvarpi. Ég er sammála því í aðalatriðum en mig langar þó að nefna hér að ég hvet hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, sem er væntanlega með þetta, til að skoða tillögu hv. þm. Brynjars Níelssonar. Ég held að hún sé skynsamleg og þess virði að taka hana vel til skoðunar. Hún gengur reyndar aðeins lengra en tillaga meiri hlutans. En ég held að það sé ákveðin forvörn í því að hafa þetta og kveða sterkar á um að ef þessi tilfelli koma upp, að menn gerist brotlegir við lög, þá sé það ekkert val einhverra einstaklinga hvort vernd viðkomandi yrði afturkölluð heldur yrði það bara skilyrði og það yrði bara gert. Með slíkri breytingu held ég að við myndum fá betri forvörn og afdráttarlausari niðurstöðu í þetta, þannig að ég hvet hv. nefnd til að skoða þá tillögu vel. Annars lýsi ég stuðningi mínum við þetta frumvarp sem er gott skref í rétta átt og mun styðja það.