157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:32]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka fyrir þá umræðu sem hér hefur farið fram. Ég átti þess ekki kost í gær að fylgjast með hér í þingsal en reyndi að gera það af fremsta megni á vef þingsins. Það er óhætt að segja að þessi umræða hafi farið um víðan völl en með því frumvarpi sem hér er til umræðu er m.a. lagt til að heimilt verði að afturkalla alþjóðlega vernd útlendings ef viðkomandi hefur framið alvarlegt afbrot og hlotið dóm fyrir eða hann hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi svo og ef hann er álitinn ógna öryggi ríkisins. Þá er lagt til að fella brott reglu 2. mgr. 74. gr. laganna þar sem heimiluð er veiting dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða hafi útlendingur ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan lögbundinna tímamarka eftir að hann sótti um alþjóðlega vernd.

Helsta breytingin frá því frumvarpi sem lagt var fram á síðasta þingi, 156. þingi, er sú að bætt hefur verið við ákvæði um að heimilt verði að afturkalla alþjóðlega vernd hafi viðkomandi útlendingur verið dæmdur fyrir ítrekuð brot sem ógni allsherjarreglu og almannaöryggi. Ég hygg að það sé í samræmi við álit margra í okkar samfélagi að þeir sem hér njóti alþjóðlegrar verndar séu ekki síbrotamenn þó að hvert og eitt afbrot þeirra sé ekki talið alvarlegt og því sé viðeigandi að heimilt verði að afturkalla vernd á þeim forsendum.

Ég tel að það séu fjögur helstu atriði í þessu frumvarpi. Fyrst ber að telja útilokunarástæður fyrir alþjóðlegri vernd sem eru í 1. gr. frumvarpsins. Ákvæði 2. mgr. 40. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um tilteknar útilokunarástæður fyrir alþjóðlegri vernd. Í c- og d-lið 2. mgr. umræddrar 40. gr. er kveðið á um slíkar takmarkanir. Annars vegar ef ástæða er til að álíta að viðkomandi sé hættulegur öryggi ríkisins eða hann hafi hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt brot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu. Hins vegar ef viðkomandi flóttamaður hefur yfirgefið heimaland sitt eða land þar sem hann hafði síðast fasta búsetu í þeim eina tilgangi að komast hjá refsingu fyrir brot sem getur varðað fangelsisrefsingu samkvæmt íslenskum hegningarlögum. Samkvæmt gildandi lögum eiga framangreindar útilokunarástæður aðeins við um flóttamenn skv. 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga, þ.e. um þá sem eiga rétt á svokallaðri viðbótarvernd. Með frumvarpinu er lagt til að því verði breytt svo að þessar takmarkanir eigi við um alla umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Svo því sé til haga haldið þá komu fram um þetta atriði athugasemdir í umsögnum á síðasta þingi og einnig nú við meðferð málsins hjá hv. allsherjar- og menntamálanefnd, að með breytingunni væri farið út fyrir heimildir sem flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna kveður á um. Þetta var gaumgæft við meðferð málsins og það er rétt að hafa í huga að það blasir við að nauðsynlegt kann að vera að unnt sé að bregðast við tilteknum aðstæðum og útiloka að einstaklingur eigi rétt á alþjóðlegri vernd þegar gildar ástæður eru til að álíta viðkomandi hættulegan öryggi ríkisins eða hafi hann hlotið endanlegan dóm fyrir sérstaklega alvarlegt brot eða ítrekuð brot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu. Þetta telst vera mikilvægt til að hafa inni í þessum lögum.

Í 3. gr. frumvarpsins er fjallað um afturköllun alþjóðlegrar verndar. Það atriði hefur fengið langmesta umræðu og lögin eru að einhverju leyti kennd við. Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að afturkalla alþjóðlega vernd ef gildar ástæður eru til að álíta viðkomandi hættulegan öryggi ríkisins eða ef hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir sérstaklega alvarlegt afbrot eða ítrekuð brot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu. Svo sem heyra má er náttúrlega um að ræða endurtekningu, en það eru sömu skilyrði sem gilda annars vegar fyrir útilokunarástæðu fyrir alþjóðlega vernd og/eða afturköllun alþjóðlegrar verndar.

Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er Ísland eina Norðurlandaþjóðin sem heimilar ekki afturköllun alþjóðlegrar verndar þegar viðkomandi hefur framið sérstaklega alvarlegt brot eða telst ógn við öryggi ríkisins. Ákvæði frumvarpsins tekur m.a. mið af löggjöf annars staðar á Norðurlöndunum.

Í umsögnum sem hv. allsherjar- og menntamálanefnd bárust við meðferð málsins var bent á að gera þurfi greinarmun á ólíkum tegundum afturköllunar alþjóðlegrar verndar í skilningi laganna. Í því samhengi benti kærunefnd útlendingamála m.a. á í umsögn sinni að ástæða gæti verið til að taka til heildstæðrar endurskoðunar hvaða ástæður geta leitt til útilokunar frá alþjóðlegri vernd sé ætlunin að samræma íslenska löggjöf við löggjöf nágrannaþjóðanna og vísar í því samhengi til framsetningar útfærslu á regluverki Evrópusambandsins. Tilefni kann að vera til að taka þetta atriði til nánari skoðunar við frekari endurskoðun á lögum um útlendinga sem er kannski ekki tilefni þessa frumvarps.

Þriðja atriðið sem ég vil nefna er dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða vegna lögbundinna tímamarka. Stundum hefur verið vísað til þessarar reglu sem 18 mánaða reglu, en í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er kveðið á um heimild til veitingar dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða hafi útlendingur ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan lögbundinna tímamarka eftir að hafa sótt um alþjóðlega vernd. Skilyrði fyrir því að einstaklingur fái dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins er að það hafi verið skorið úr um að viðkomandi uppfylli ekki skilyrði til að fá útgefna alþjóðlega vernd. Þeir einstaklingar sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli heimildarinnar eru því ekki flóttamenn í skilningi laganna.

Frumvarpið kveður á um að fella brott umrætt ákvæði. Þessi breyting kann að orka tvímælis og voru gerðar athugasemdir í umsögn um þetta ákvæði við meðferð málsins. Um er að ræða svokallaða séríslenska reglu og sambærilega reglu er ekki að finna í löggjöf annarra Norðurlanda. Þessi séríslenska regla hefur valdið auknu álagi á framkvæmd í málaflokknum. Mín sýn í þessu máli er sú að nauðsynlegt sé að vinna hratt með umsóknir um dvalarleyfi þannig að umsækjendur fái fljótt úrlausn sinna mála og með því fái viðkomandi útlendingur sanngjarna úrlausn. Fjöldi umsókna um alþjóðlega vernd hefur skapað mikið álag bæði fyrir Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála sem mikilvægt er að bregðast við. Flóttamannakerfið er neyðarkerfi og mikilvægt er að tryggja að einstaklingar sem hingað leita og þarfnast verndar fái vandaða og skilvirka málsmeðferð.

Fjórða atriðið er dvalarleyfi vegna umborinnar dvalar sem er nýr flokkur dvalarleyfis og varðar þá sem eru sviptir alþjóðlegri vernd sérstaklega. Með frumvarpinu er kveðið á um nýjan dvalarleyfisflokk, svokallað dvalarleyfi vegna umborinnar dvalar. Það nær til þeirra sem annaðhvort njóta ekki stöðu flóttamanns eða alþjóðleg vernd hefur verið afturkölluð hjá viðkomandi en aðstæður í heimaríki koma í veg fyrir brottvísun. Í framkvæmd taka stjórnvöld í slíkum tilvikum ákvörðun um brottvísun og endurkomubann en fresta réttaráhrifum ákvörðunarinnar tímabundið á grundvelli 42. gr. laganna um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu og veita viðkomandi dvalarleyfi vegna umborinnar dvalar. Líkt og rakið er í greinargerð verður einstaklingi í þessari stöðu óheimilt að fá dvalarleyfi á öðrum grundvelli þar sem grunnskilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis er að ekki liggi fyrir atvik sem valdið geta því að viðkomandi verði meinuð landganga hér á landi eða dvöl samkvæmt öðrum ákvæðum laganna, sbr. d-lið 1. mgr. 55. gr. Við þessar aðstæður er mikilvægt að bregðast við stöðu þeirra sem njóta ekki stöðu flóttamanns hér á landi en er þó ekki hægt að brottvísa með vísan til 42. gr. laganna.

Umræða um breytingar á lögum um útlendinga er varða réttindi einstaklinga sem hingað leita verður alltaf viðkvæm. Hér í dag hefur verið umræða sem hefur meira snúist um að herða reglur og kannski verið gert lítið úr því að þessar reglur þurfi líka að innihalda ákveðna mannúð og það á við um þær breytingar sem hér eru til umræðu einnig. Það er mikilvægt að hafa í huga að það getur verið villandi og jafnvel haft aðrar afleiðingar en eftir var leitað að hafa sérstakar reglur hér á landi samanborið við nágrannalönd okkar. Þessu frumvarpi er ætlað að gera það að verkum að meira samræmi verði á milli reglna hér á landi og í nágrannalöndum okkar.

Ég vil nefna sérstaklega að þegar kemur að umræðu um afturköllun verndar er í lögum um útlendinga ein hugtakanotkun varðandi úrræði sem ensk tunga á a.m.k. þrjú hugtök yfir eftir því á hvaða forsendum afturköllunin er, þ.e. þegar við notum afturköllun verndar. En efnislega er um að ræða að í fyrsta lagi getur afturköllun orðið vegna þess að breytingar hafa orðið á aðstæðum í heimaríki sem urðu þess valdandi að viðkomandi einstaklingur fékk vernd hér á landi. Í annan stað getur verið um það að ræða að viðkomandi einstaklingur hafi beitt blekkingum og sagt rangt til um aðstæður sínar þegar hann fékk vernd sem verður þess valdandi að verndin er afturkölluð. Í þriðja lagi geta verið uppi þær aðstæður sem þetta frumvarp varðar, þ.e. að viðkomandi einstaklingur hafi brotið alvarlega af sér eða hann er talinn hættulegur öryggi ríkisins. Mikilvægt er að þetta verði skýrt í lögum um útlendinga.

Þetta frumvarp er ásamt fleiri frumvörpum sem lögð hafa verið fyrir Alþingi um útlendinga og ekki bara um útlendinga heldur líka um brottfararmiðstöð sem er í meðferð hv. allsherjar- og menntamálanefndar og það var líka í haust samþykkt frumvarp sem varðar það að flugfélög skuli afhenda alla farþegalista þannig að það ættu að vera orðin 100% skil á slíkum listum til yfirvalda. Þessi frumvörp munu mynda ramma um það markmið hæstv. dómsmálaráðherra að skýra lög um útlendinga og umhverfi þar að lútandi og gera reglur gegnsærri og sanngjarnari. Það er mikilvægt að lög og reglur séu í samræmi við réttarvitund fólks og auki þannig öryggistilfinningu.

Ég ætla að nefna örlítið hér breytingartillögu hv. þm. Brynjars Níelssonar. Hún varðar fyrst og fremst hvernig við lítum á hugtökin. Annars vegar er um að ræða að það sé ekki talað um ítrekuð brot þegar um er að ræða það sem bætt var við þessi lög. Síðan að það verði skylda við tilteknar aðstæður eftir tiltekin brot að afturkalla alþjóðlega vernd. Það kann að vera að það séu kannski að einhverju leyti tæknilegir örðugleikar við það að við náum að ræða þessa breytingartillögu nema hún verði þá afturkölluð og málinu vísað aftur til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og þá efni breytingartillögunnar tekið til umræðu þar. Ef ég skil þingsköpin rétt verður farið við lok þessarar umræðu í atkvæðagreiðslu eftir 2. umræðu og þá kemur væntanlega breytingartillagan líka til atkvæðagreiðslu. Þetta er það sem ég vildi nefna í þessu sambandi.

Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.