157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:45]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vona að hv. þingmaður afsaki að ég taki svona til orða en mér fannst þessi ræða einkennast mjög af því sem er ekki hægt að kalla annað en kerfistal og ástæðan fyrir því að ég sé ástæðu til að nefna þetta er að í því liggur ekki hvað síst vandi þessa málaflokks sem hér um ræðir. Kerfið nálgast þetta á kerfislægan hátt og í síauknum mæli, að því er virðist, án tengingar við raunveruleikann. Fyrirkomulagið á þessum málum þarf að taka eitthvert mið af þeim raunveruleika sem blasir við, eðli og umfangi þess vanda sem við er að eiga. Það hefur skort verulega að sú hafi verið raunin. Hér er komið fram frumvarp og hvernig er það rökstutt eða réttlætt? Jú, með vísan í kerfið í útlöndum, að í sumar hafi fundur Evrópusambandsins ályktað um eitthvað, tekið ákvörðun og þetta sé m.a. til þess ætlað að bregðast við því og ákvörðunum Norðurlandanna einnig, breytingum á þeirra hælisleitendakerfum. Erum við ekki fullvalda þjóð? Erum við ekki fær um að taka okkar eigin ákvarðanir í þessu efni og verja þetta samfélag og landamæri þess? Ég hef alltaf goldið varhuga við því þegar menn vísa í að það sé bara ekki hægt að gera hlutina öðruvísi af því að einhverjir erlendir samningar eða reglur segja að við verðum að hafa þetta eins og það er. Það er ekki þannig, frú forseti. Fullveldisrétturinn er æðri og þegar framtíð samfélagsins er í húfi þá getum við tekið þær ákvarðanir sem þarf til að verja það.