157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:47]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Það kom ekki bein spurning frá hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sem ég þakka fyrir andsvarið. Það kann að vera að ég halli mér mikið að kerfi þegar ég fjalla um mál en engu að síður þá held ég að það sé grundvallaratriði þegar við erum að horfa til ákveðinna málaflokka að við reynum að hafa eitthvert kerfi á þeim hlutum því annars verða þetta væntanlega geðþóttaákvarðanir — eða hvað? Hvernig ætlum við að geta tekið á málum og eftir atvikum lagað okkur að þeim aðstæðum sem upp komu hverju sinni? Það kom fram í ræðu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur áðan að þetta væri síkvikt kerfi og við þyrftum að geta brugðist við og ég er sammála því. Ég held að það sé grundvallaratriði að málið í dag er kannski ekkert eins og það var í gær eða verður á morgun og þá þurfum við að geta brugðist við. Kerfi sem geta brugðist við, ég held að það séu þau kerfi sem við viljum hafa. En það er hins vegar einhver grundvallarmisskilningur í því að þetta tengist ESB með einhverjum hætti. Mér finnst þessi ESB-umræða bara undarleg, svo ekki sé meira sagt. Það er þannig að einhver reglugerð Evrópusambandsins tekur gildi, held ég, seinna á þessu ári. Hún er búin að liggja fyrir nokkuð lengi en það kemur fram í þessu frumvarpi að markmiðið er að samræma reglurnar við nágrannalöndin okkar þannig að það séu ekki svokallaðar séríslenskar reglur sem verða þess valdandi að hingað leiti fólk frekar en til annarra landa, að löndin sem fólk leitar til eða leitar eftir að fá alþjóðlega vernd í séu ekki með mismunandi reglur þannig að eitt land að einhverju leyti hafi yfir sér þann brag að þangað verði leitað frekar en til annarra landa.