útlendingar.
Frú forseti. Samræma reglurnar við hin Norðurlöndin þannig að við séum ekki miklu opnari en þau af því að þau breyttu sínum reglum, skárra væri það nú. Engu að síður hefur þessi ríkisstjórn, og reyndar fyrri ríkisstjórnir líka, verið mjög treg til að læra af reynslu þessara landa. Hv. þm. Brynjar Níelsson lýsti því ágætlega hér fyrr í dag hvernig nágrannalöndin eða fulltrúar þeirra hefðu ítrekað reynt að vara íslensk stjórnvöld við og bent þeim á að þau hefðu enn smá tækifæri til að bregðast við. Það er ekkert brugðist við í samræmi við tilefnið, það er brugðist við eftir á, þegar hin löndin eru búin að breyta sínu kerfi eitthvað örlítið, þá þurfum við að gera það líka án þess að taka sérstaklega tillit til okkar aðstæðna. Hv. þingmaður vísar í það að kerfin taki breytingum. Hann er þó einn af þeim sem hafa ítrekað vísað fyrst og fremst til flóttamannasáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 1951 sem var ætlaður til að takast á við allt annars konar aðstæður heldur en þessi mál eru í í dag. Við þurfum reglur sem taka mið af raunveruleikanum eins og hann er núna.
En þótt ég hafi kvartað yfir kerfistali hér áðan þá vottaði líka fyrir umbúðatalinu þegar hv. þingmaður nefndi mannúð og að einhverjum hefði ekki þótt það nógu góðar skýringar á nálgun ríkisstjórnarinnar. Ég skal bara ítreka það sem ég sagði áðan, ég tel það ekki nógu góða skýringu að kasta fram hugtakinu mannúð. Hvað er mannúð? Hvenær væru komnir of margir að mati hv. þingmanns ef þetta snýst bara um mannúð? 10.000 á ári eða 50.000? Ef við segjum nei þegar komnir eru 50.000 erum við þá að brjóta gegn mannúð? Þetta eru innihaldslaus rök og raunar engin rök að kasta fram svona hugtökum. Það þarf reglur sem taka mið af raunveruleikanum.