157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:52]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir síðara andsvarið. Þannig er það með sum hugtök í íslensku að maður gerir kannski ráð fyrir því að fólk hafi svipaða hugmynd um hvað þau þýða. Í mínum huga tengist mannúð ekki á nokkurn hátt fjölda þeirra sem fá alþjóðlega vernd hér og …(SDG: Þess vegna eru það ekki rök. ) — Ég hef orðið hv. þingmaður. Það tengist ekki fjölda heldur því að tekið sé á móti þeim sem hingað koma með viðeigandi hætti og með þeim hætti að viðkomandi geti samlagast þessu samfélagi hér og eftir atvikum, á meðan hann er hér, vegna þess að það er alveg ljóst að kerfið okkar er verndarkerfi. Þeir sem fá hér alþjóðlega vernd eru að óska eftir því í verndarkerfi. Verndin getur staðið yfir í nokkur ár og hún er að einhverju leyti til komin vegna alþjóðlegra skuldbindinga sem við höfum tekist á hendur. Við getum auðvitað velt vöngum yfir því hvort samningar frá 1951 séu eitthvað sem gilda í dag, nákvæmlega eins og við getum velt fyrir okkur hvort almenn hegningarlög frá 1940 séu eitthvað sem passi við umhverfi dagsins í dag. Þeim hefur reyndar verið margítrekað breytt til þess að aðlagast nútímanum. Ef það fer eitthvað á milli mála hvað átt er við með mannúð þá er ég sennilega ekki rétti maðurinn til að aðstoða hv. þingmann með skilning á því.