útlendingar.
Frú forseti. Það fer kannski ágætlega á því að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í andsvörum mínum við hv. þm. Grím Grímsson, sem leitaðist við að svara spurningum mínum um mennskuna og gera grein fyrir því hvað í því fælist. Það var áhugaverð skilgreining og gagnleg, tel ég vera, því að eftir því sem næst verður komist þá snýst allt talið um mennskuna í tengslum við þetta mál, eða mannúð, afsakið, frú forseti, svo ég leiðrétti mig. Hv. þingmaður kallaði hérna fram í, ég heyrði það bara ekki alveg áðan. Svo sé ég hér að ég hef skrifað hjá mér mannúð, vissulega blæbrigðamunur. Mannúð snýst um að geta tekið vel á móti þeim sem við tökum á móti, þ.e. tekið á móti þeim með mannúðlegum hætti. Ég er bara algerlega sammála þessu, frú forseti. En í því liggur vandinn, að við erum hér að taka á móti miklu fleirum en við getum tekið á móti af þeirri mannúð sem við myndum vilja sýna, hvort sem það er gagnvart viðkomandi fólki, aðkomufólkinu, eða samfélaginu sem fyrir er. Þess vegna þurfum við að grípa inn í. Ef við þurfum að bregðast við þeirri óstjórn sem hefur verið í þessum málaflokki og orðið til þess að hingað koma nú þúsundir á ári hverju til að sækja um hæli og svo bætist við það mikill fjöldi sem kemur eftir öðrum leiðum sem eru einnig misnotaðar, til að mynda þeim sem koma út af námsmannaleyfi, sérfræðileyfi o.s.frv. Við þessu þurfum við að bregðast og gera það með miklu afdrifaríkari eða meira afgerandi hætti heldur en birtist í því frumvarpi sem við ræðum hér. Við þurfum að gera það með þeim hætti að það sé í einhverju samræmi við umfang og eðli vandans.
Hér er oft vísað til alþjóðasáttmála, alþjóðasamninga, alþjóðareglna og þar fram eftir götunum. En ég ítreka það sem ég nefndi hér áðan, að þegar kemur að því að verja samfélagið, íslenskt samfélag, þá er fullveldisréttur okkar, réttur okkar til að verja Ísland og íslenskt samfélag, æðri öllum öðrum vangaveltum, þótt að sjálfsögðu viljum við leggja okkar af mörkum eins og við best getum til að aðstoða á alþjóðavísu. Það gerum við reyndar best með því að veita stuðning á nærsvæðinu. En ef við erum að hvetja það marga til að koma til Íslands eða til að verða sendir til Íslands að við ráðum í raun ekki við það hér heima, þá er svigrúm okkar og möguleikar á að aðstoða margfalt fleiri á nærsvæðunum fyrir bí.
Oft er vísað í flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna frá 1951. Sá samningur kom til í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar og var til þess ætlaður að þegar fólk þurfti að flýja stríðsátök þá gæti það leitað til nálægra landa og fengið þar aðstoð, fengið þar hæli á meðan átökin gengju yfir og gæti síðan vonandi snúið heim aftur og byggt upp sitt land. Nú hefur þessi sáttmáli, og reyndar margir aðrir samningar milli ríkja sem varða fólksflutninga, verið misnotaður stórkostlega. Nú er hæli á Vesturlöndum orðið söluvara. Ég gat um þetta í fyrri ræðu minni, að samkvæmt mati Evrópulögreglunnar eru yfir 95% þeirra, sem koma til álfunnar og sækja þar um hæli, á vegum þeirra glæpagengja sem selja þessar ferðir, selja væntingar um betra líf á Vesturlöndum og ætla svo skattgreiðendum þar, velferðarkerfunum, stjórnvöldum á Vesturlöndum, að uppfylla þessar væntingar og fjármagna þær. Við getum ekki leyft Íslandi að vera söluvara með þeim hætti. Við þurfum að ná stjórn á landamærunum og erum vel í stakk búin til að gera það. Hingað mætir enginn til að sækja um hæli án þess að hafa áður komið við í öruggu landi og þar ber mönnum að sækja um hæli. Mönnum ber, hvort sem litið er til fyrrnefnds flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna eða Evrópureglna mannréttindasáttmála Evrópu, að sækja um hæli í fyrsta örugga landinu sem þeir koma til. Þannig hafa til að mynda Danir, dönsk stjórnvöld, Mette Frederiksen forsætisráðherra, lýst því yfir að stefna ríkisstjórnarinnar sé sú að enginn komi til Danmerkur til að sækja þar um hæli. Það þýðir ekki að Danir ætli ekki að taka á móti flóttamönnum. Það þýðir það að menn verða að sækja um utan Danmerkur og svo geta dönsk stjórnvöld ákveðið hverjum er boðið til landsins, geta valið þar úr. Nú ræða Danir það að innleiða þá reglu að ef menn mæti til landsins og sæki þar um fremur en að gera það annars staðar þá sé hælinu sjálfkrafa hafnað og viðkomandi geti ekki mætt aftur til Danmerkur og sótt þar um hæli.
Þetta getum við gert á Íslandi, eins og hv. þingmenn Miðflokksins hafa bent á um margra ára skeið. Við, verandi þessi eyja hérna norður í hafi, getum einfaldlega látið þau boð út ganga að mæti menn hingað og sæki um hæli hér þá fái þeir ekki hæli og þeir fái ekki að koma aftur til að reyna að sækja um hæli. Þeir geti sótt um hæli á Íslandi annars staðar. Þá fari það til meðferðar og við veljum úr fólk sem við tökum á móti hér þannig að það slæðist ekki inn vafasamt fólk. Þetta er í samræmi við til að mynda Dyflinnarreglugerðina sem hefur ekki verið beitt að sama skapi og ástæða hefði verið til. Hún gerir ráð fyrir að menn séu sendir til þess örugga lands sem þeir komu frá. Hafi þeir ekki komið beint af hættusvæðinu þá verði þeir sendir til hins örugga lands sem þeir komu frá og unnið úr málum þar. Þessu hefur, eins og ég nefndi, ekki verið fyllilega beitt og með því, meðal annarrar vanrækslu á þessu sviði, hefur verið búinn til sterkur hvati til að koma til Íslands og sækja hér um hæli og Ísland orðið að söluvöru á þessum markaði sem er orðinn til með hæli í ólíkum löndum.
Þar af leiðandi er algerlega ótækt að Ísland, eða eftir atvikum önnur vestræn ríki, haldi áfram að miða fyrst og fremst við sáttmála frá árinu 1951 sem var ætlaður fyrir allt annars konar aðstæður, nú þegar yfirgnæfandi meiri hluti, langflestir þeirra sem koma til Evrópu, gerir það sem skjólstæðingar, ef það er rétta orðið, glæpamanna sem eru búnir að selja væntingar um betra líf frekar en að vera að aðstoða fólk við það að flýja hörmungar. Enda sjáum við það að þeir sem komast alla leið gera það ekki nema að hafa átt til þess pening. Það er t.d. áhugaverð staðreynd að mikill straumur fólks liggur í gegnum Chad, ríki í Afríku, minnir mig að það hafi verið frekar en Malí, í öðru hvoru þessara ríkja. Í Chad er miðstöð þessarar starfsemi í Afríku og þar fer mikill fjöldi fólks í gegn á vegum þessara aðila. Það fara hins vegar mjög fáir íbúar þessa lands til Evrópu til að sækja þar um hæli. Það er vegna þess að þeir eru fátækir, þeir eru of fátækir til að kaupa sér miða með þessum aðilum til Evrópu, kaupa sig inn á evrópska velferðarkerfið. Með öðrum orðum, það er ekki verið að aðstoða fyrst og fremst þá alfátækustu, þá sem eru í mestri neyð, þá sem eru hungraðir; það er verið að aðstoða þá sem hafa efni á því að borga oft á tíðum um 15.000 evrur til að kaupa aðgang að vestræna kerfinu. Þegar staðan er orðin sú þá er ekki hægt að byggja reglurnar og aðferðirnar á flóttamannasamningi frá 1951 sem var ætlaður til að taka til skamms tíma á móti fólki sem væri að flýja stríðið í næsta landi.
Frú forseti. Það er fjölmargt fleira sem ég þarf að segja um þessi mál en eitthvað heyrði ég talað um breytingar á dagskrá í dag og bíð þess vegna aðeins með að skrá mig aftur á mælendaskrá.