veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Rétt að ræða það að það hefur enginn ágreiningur verið um eignarréttarákvæði stjórnarskrár í þessu samhengi heldur atvinnuréttindaákvæði stjórnarskrár og Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og hv. þingmaður, fór hér ágætlega yfir það áðan. Ég ætla ekki að eyða frekari tíma í það.
Hv. þingmaður nefndi tvo galla við þessa breytingu. Það eru annars vegar stærðarmörkin, sem er náttúrlega lítið mál að endurskoða og breyta og við höfum lýst yfir vilja til þess til að tryggja enn frekar að þetta sé smábátaútgerð, og síðan var talað um að réttindi margra hefðu dottið niður. Það kom fram hjá þeim sem unnu breytinguna á sínum tíma að það væru að mestu leyti bátar sem hefðu ekki stundað grásleppuveiðar í mörg ár. Þetta eru staðreyndir. Ef einhverjir eru þar undanskildir þá á að sjálfsögðu að endurskoða það og bæta þeim það. Það er alveg tæki til þess. Forstjóri Fiskistofu kom fyrir nefndina á sínum tíma og spurði bara hver ætti að borga bæturnar og hvort það væri búið að reikna út hversu miklar þær yrðu.
Hv. þingmaður sagði hér áðan að það þjónaði hvorki hagsmunum greinarinnar né þjóðarinnar, það væri í greinargerðinni. Sú fullyrðing samræmist alls ekki sjónarmiðum langstærsts meginhluta þeirra sem sjómanna stunda hrognkelsaveiðar í dag. Þeir eru upp til hópa mjög sammála þeim breytingum sem voru gerðar og styðja þær, það er greinin, enda eru einhverjir þessara aðila þegar farnir á sjó og aðrir eru núna að fara á sjó bara í næstu viku vegna þess að verðið fyrir grásleppu í dag er 600 og allt upp í 900 kr. fyrir kílóið. En í því takmarkaða kerfi sem hv. þingmaður er að tala hér fyrir var verðið á síðustu vertíð algengt 250–270 kr. Hvort þjónar nú betur þjóðarbúinu og greininni, að geta verið með þennan sveigjanleika í kerfinu og sótt sjóinn þó að aflinn sé minni en kílóverðið miklu hærra? Ég spyr hv. þingmann út í þetta og bið hann að bregðast við því.