157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

153. mál
[19:09]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður hefur þá ekki hlustað á þegar ég fór yfir það að MSC-vottunin gengur ekki út á það að útiloka annaðhvort aflamarkskerfi eða sóknardagakerfi. (Gripið fram í.) Það skiptir ekki neinu máli. Það liggur algerlega fyrir, hv. þingmaður, og ætti hann þá bara að kynna sér það betur. (Gripið fram í.) Hv. þingmaður fullyrðir að allir eða flestir grásleppusjómenn styðji núverandi fyrirkomulag. Það er bara ekki rétt. Aðrar umsagnir segja allt annað. Og talandi um það þá hefur sá hv. þingmaður sem hér stendur nýlega fengið frá stóru fyrirtæki, Brimi, sem á stóra grásleppuútgerð, ósk um að breyta alls ekki þessu frumvarpi. Og hvað er það annað en að ýta undir það að það verði áframhaldandi samþjöppun? (JGunn : … stóra grásleppuútgerð. Þeir eru stærstu vinnsluaðilarnir.) Nú er ég ekki í samræðum við ákveðinn hv. þingmann úti í sal sem stöðugts truflar mitt mál, sem ég gerði ekki í hans tilfelli. En hv. þingmaður verður bara að meðtaka það að það er mikið ákall eftir breytingum á þessu frumvarpi, að byggðirnar hafi áfram þennan rétt og að hann færist ekki á hendur stórra aðila í sjávarútvegi, sem allar vísbendingar eru til. Við þekkjum það mætavel bara í krókaaflamarkskerfinu hver uppkaupin hafa verið þar á stórútgerðum. Það þekkir hvert mannsbarn sem fylgist eitthvað með sjávarútvegi hvert þetta er að leiða okkur. Ég mun alveg út í rauðan dauðann berjast fyrir einkaframtakinu í þessari atvinnugrein, að við styðjum við þessa menningu sjávarbyggðanna okkar, sem hefur bara verið blómleg atvinnugrein með öðru. Ég vil ekki sjá þetta færast allt á hendur þessara stærstu útgerða í landinu sem eiga yfir að ráða yfir 80% af þeim aflaheimildum sem úthlutað er á hverju ári. Við erum alls ekki að tala um að fara ekki eftir ráðgjöf Hafró. Ráðgjöf Hafró liggur fyrir hverju sinni. Við förum eftir henni. En það þarf að rannsaka enn betur hvernig aðferðafræði þeirra er og þeir hafa viðurkennt það sjálfir. (Gripið fram í.)