framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég gat ekki annað heyrt en að meginþorri ræðu hv. þingmanns um kynjajafnréttisjafnréttisáætlun hafi einmitt falist í því að lýsa einhvers konar brandara, hversu fyndið þetta væri allt saman, svona háðstónn þegar ákveðin hugtök eru notuð og undirtónninn allur að þetta sé allt svolítið kómískt. Það er ágætt að draga það hérna fram að auðvitað er umræða, sem í raun og veru beinist að tilveru fólks, ekki fyndin, hún er bara hluti af raunveruleikanum. Mér finnst mjög áhugavert að hlusta hér á hv. þm. Snorra Másson tala hér í einhverjar 20 mínútur þar sem hann fór vissulega um víðan völl, þar sem innihaldið er að mestu leyti einhvers konar hugtök og lýsingar á hugtökum og afskræming á hugtökum. Mín upplifun er sú að hv. þingmaður sé mjög fastur í einhverjum hugtakaheimi og mig langar að bjóða honum inn í raunveruleikann, bara einlæglega, af því að ég held að hv. þingmaður hefði gott af því að raunveruleikatengja sig svolítið í þessari umræðu vegna þess að á bak við öll þessi hugtök, á bak við alla þessa svokölluðu brandara eru einstaklingar sem upplifa á hverjum degi mismunun og markmiðið með þessari áætlun er að draga úr þeirri mismunun með einhverjum hætti. Það er ekki markmiðið hér að einhverjir hópar fari upp fyrir einhverja aðra heldur einmitt að jafna leikinn þannig að við áttum okkur á því að það eru ólíkir glerveggir og glerþök og glerbrúnir sem birtast. Ég hreinlega spyr mig og ætla að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi einhvern tímann á ævinni rekist á slíkt.