157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[20:01]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni allsherjarnefndar, Víði Reynissyni, fyrir andsvarið sem fór um víðan völl eins og ræðan og fyrri hluti ræðunnar. Kannski kom yfir mig einhver guðlegur innblástur þannig að eitthvað af þessu hljómaði eins og spaug í eyrum hv. þingmanns en ég vona að honum hafi nú ekki misboðið það óþarflega. Við getum alveg rætt málin á léttum nótum. Ég held að við gerum það öll frá degi til dags en við þurfum ekki að örvænta yfir því að með því sé meint að maður sé einhvern veginn að vega að rétti manns og annars. Auðvitað er jafnréttishugtakið margþætt. Það er alltaf verið að berjast fyrir jafnrétti, eins og hv. þingmaður lýsir, og að um það snúist þetta allt, bara um einhvers konar jafnan rétt á endanum. En það er afskaplega erfitt að meta það hvenær menn hafa jafnan rétt og hvenær ekki. Eins og ég segi ríkir fullkominn lagalegur réttur og jafn allra á Íslandi. Um jafna stöðu fólks í ólíkum aðstæðum á öllum sviðum þjóðfélagsins, það sem markmið, ég veit það ekki, stundum er það kannski eðlilegt en á öðrum stundum er það kannski bara furðulegt.

Hv. þingmaður spyr: Hvaða ár er? Breytingar af þeim toga sem ég er að lýsa, svona hugmyndafræði sem grefur um sig, sem hvetur fólk til þess einhvern veginn að líða að eilífu eins og fórnarlambi vegna ytri einkenna sinna, ef við köllum þá hugmyndafræði framfarir, að tíminn fari svona fram, að það séu bara framfarir að mannkyninu geti aldrei dottið nein vitleysa í hug og bara af því að árið er 2026 en ekki 2023 eigi þar með það sem gildir 2026 að vera jákvætt en það sem gilti 2023 að vera neikvætt — það að framfarir séu einhvers konar óhjákvæmileg niðurstaða breytinga er auðvitað umdeilt. En hv. þingmaður spurði þessarar sömu spurningar þegar við vorum að ræða hérna fæðingarorlof á sínum tíma: Hvaða ár er? Árið er 2026. Það liggur fyrir. Þar áður var árið 2025.