157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[20:08]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Herra forseti. Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með umræðunni hér um þessa framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum. Eftir þessa umræðu langar mig að byrja á því að segja að það var skoðað ekki fyrir alls löngu hvaða hópar í samfélaginu væru svona minnst þolanlegir, mest hataðir. Þar voru á botninum, eða mest hataðir, þeir sem þáðu ekki bólusetningar og Miðflokksmenn. Það er stundum þannig að það er eitthvað kannski í málflutningi Miðflokksmanna sem veldur því að þeir eru illa liðnir. En það sem gerist virðist vera — þarna var reyndar Sjálfstæðisflokkurinn líka frekar neðarlega á meðan vinstri hugsun var mun ofar og þess umborin að samfélagið þoldi hana. Það er vert að gefa ræðu hv. þm. Snorra Mássonar gaum þrátt fyrir að flutningur hennar kunni að hafa stuðað fólk og yfirbragð hv. þingmanns í púlti var kannski þess eðlis. En nóg um það að sinni.

Sjálfur er ég afar glaður með að hafa komist á þing og fengið að vinna í allsherjar- og menntamálanefnd með öndvegisfólki í nefndinni og hef unnið þar með fólki úr öllum flokkum og reynsla mín af því fólki er mjög góð. Ég kem úr umhverfi þar sem ég vinn með börnum eða unglingum, 13–15 ára, einstaka sinnum 16 ára, og það vakti mig töluvert til umhugsunar þankagangur krakkanna, unglinganna varðandi jafnréttismál. Þar voru drengir oft svona niðurlútir og bældir með einhverjum hætti og stelpurnar að reyna að hvetja þá áfram; þeir væru nú góðir vinir þeirra og væru flottir, þeir væru ekki einhvers konar ofbeldismenn eða annað slíkt. Þetta kom mér á óvart. Ég ræddi oft við krakkana upp á skrifstofu hjá mér saman í hóp, stráka og stelpur saman, og mönnum fannst oft drengir að hálfgerðu leyti skrímslavæddir í einhvers konar hegðun, sérstaklega stúlkunum. Það vakti mig til umhugsunar þegar þau nefndu t.d. það að þau hefðu tekið eftir því að það væri búið að setja kynjakvóta í Gettu betur, sem er spurningakeppni framhaldsskólanna, en bentu jafnframt á að í stórri keppni, sem er mjög vinsæl og heitir Skrekkur, tækju 10–12% drengja þátt og það minntist enginn á það. Það þætti bara algerlega eðlilegt. Sjálfum finnst mér það eðlilegt því að ég sé það bara í skólunum að stúlkur hafa meiri áhuga á þessu fyrirbæri, Skrekki. Þær eru þroskaðri á þessum aldri og eru meira tilbúnar til að taka ábyrgð þannig að þær eru miklu fjölmennari í þessum hópi. Þær eru jafn ólíkar og það er meiri munur á milli stúlknanna heldur en síðan á milli kynjanna þannig að það er að ákveðnu leyti hvimleitt að vera að etja saman kynjunum stanslaust. Það er hvimleitt því að auðvitað erum við öll saman í þessu lífi.

Í störfum mínum í allsherjar- og menntamálanefnd og í kringum þessa kynjajafnréttisáætlun komu fyrir nefndina ótal kynjajafnréttisnefndir hinna ýmsu stofnana og fyrirtækja og það var undantekningarlaust þannig að konur voru í miklum meiri hluta. Það er ekki við konur að sakast í því. Karlar sýna þessu minni áhuga, það virðist vera algerlega ljóst. En það sem kom mér að ákveðnu leyti á óvart, og ég reyndi að grennslast fyrir um það með spurningum í nefndinni, var hvernig þeir sem voru í þessum nefndum horfðu á málin. Það var oft þannig að það var ekki eins og ég sá málin. Það kom sumum nefndarmönnum á óvart ef það var rætt um eitthvað sem var kannski ekki nákvæmlega eftir því sem hefur verið talað um í samfélaginu. Maður nefnir það bara að það voru 39 aðgerðir og þar af var ein sem sneri beint að körlum. Eftir umræðu í nefndinni bættist ein við þannig að tvær af 40 sneru beint að körlum. Núna er komin svona karlanefnd í áætlunina en hún er til eins árs. Ég hefði viljað sjá hana til lengri tíma. Í umsögnum stofnana og nefnda um þessa áætlun eru karlar fyrst og fremst notaðir eða sýndir sem ofbeldismenn. Ég held að það sé ofboðslega vont. Þetta eru kynferðisofbeldismenn og þetta er hitt og þetta, þeir eru að beita ofbeldi hingað og þangað. Ég skoða það síðan á eftir hvernig tölurnar eru sem birtast kannski sjaldan í fjölmiðlum. Þeir eru ekki birtir sem hópur með eigin réttindi eða áskoranir. Það vantar. Ég tel að við í nefndinni hefðum átt að gera betur og sá sem stendur hér er ekkert undanskilinn því.

Í stórri íslenskri könnun segjast 64–70% fullorðinna Íslendinga hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi í æsku og karlar nefna slíka reynslu oftar en konur, sérstaklega hótanir, hræðslu og refsingar. Konur lýsa því hins vegar oftar að hafa orðið fyrir tilfinningalegri höfnun og mismunun. Þarna er einhver munur á kynjunum en bæði kynin lenda í allt of miklu ofbeldi einhvers konar í æsku, sem börn. Ég heyri lítið talað um þetta. Vanræksla er einnig verulegt vandamál. 13–18% svarenda segja að þau hafi verið vanrækt sem börn og vanræksla er líklegri til að koma fram í frásögnum kvenna, stúlkur sögðu frekar að þær hefðu verið vanræktar. Ég ætla ekkert að reyna að finna orsökina að því en mögulega er það þannig að meiri ábyrgð er ýtt á stúlkur strax í æsku. Vanræksla er sem sagt líklegri til að koma fram í frásögnum kvenna en tengist oft félagslegum erfiðleikum foreldranna, fátækt eða langvarandi veikindum eða vímuefnavanda. Líkamlegt ofbeldi er líka til staðar hjá þessum börnum, 42–53% svarenda, og karlar nefna slíka upplifun mun oftar en konur. Rannsóknir benda til þess að strákar hafi orðið fyrir harðari aga og líkamlegum viðurlögum á heimilum og líkamlegar refsingar voru í gegnum tíðina rökstuddar sem uppeldisaðferðir en teljast nú ótvírætt ofbeldi samkvæmt lögum. Mögulega er þetta að fasast út og vonandi er það þannig með líkamlegt ofbeldi innan fjölskyldna. Hér erum við að tala um það að börn verða því miður allt of mikið fyrir ofbeldi en tvær af 40 aðgerðum í áætluninni eru fyrir karla og drengi.

Tíðni kynferðisofbeldis í æsku er einnig allt of há og 35% stúlkna og 20% drengja segjast hafa orðið fyrir einhvers konar kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur. Þetta er auðvitað algerlega óþolandi en maður heyrir sjaldan um þessi 20% drengja. Lögreglan hefur kallað eftir úrræðum eins og Konukoti eða Kvennaathvarfi fyrir karla og það er nú í pípunum og hæstv. félagsmálaráðherra fyrrverandi setti fjármagn í það og það er jákvætt að til yrði karlaathvarf með einhverjum hætti, alla vega drög að því lögð, það yrði viðurkenning á því að karlar þyrftu ekki að kyngja öllu og hefðu mögulega athvarf til að leita í ef þeir lentu í einhverju slíku.

En ég velti því fyrir mér í nefndinni: Hvers vegna er staðan þessi og umræðan svona ofboðslega einhliða? Ég veit að það er ekki pólitískt rétt að tala svona eins og ég tala hér en ég get ekki sagt annað en það sem ég hef fundið í kringum það að fá að vera í allsherjar- og menntamálanefnd, sem er einstaklega fróðlegt og gott. Fólk vinnur að málum eftir því hvar eldurinn brennur, það finnur einhvern hita og konur tengja mun betur, og það er ekkert skrýtið, við ofbeldi gegn konum og því eru þær á dagskrá, burt séð frá lögum og erindisbréfum, frekar en karlar. Ofbeldi er margs konar — það er margs konar þó að það sé erfitt að hlusta á það. Svo kemur fram líka í rannsóknum að bæði karlar og konur finna miklu meira til með konum sem eiga í vanda heldur en körlum, þar á meðal sá sem hér stendur. Ég get ekki útskýrt nákvæmlega hvers vegna en það er þannig. Ef ég sé konu í vanda þá er ég líklegri til að bregðast við en ef ég sé karl í vanda. Mig langar ekki að vera þannig. En ég er þannig og ég held að fleiri séu þannig. Samúð með körlum sem komnir eru á götuna virðist vera mun, mun minni en með konum sem eru komnar á götuna. Ef það yrði gerð könnun á þessu í samfélaginu þá held ég að það séu allir sammála um það að þetta kæmi fram og það er ekki gott. Hvar er jafnréttið í þessu? Hvar er minnst á þetta í jafnréttisáætlunum? Við karlarnir verðum að stíga sterkar inn vegna þess að þetta virðist því miður vera þannig, sem ég bara vildi ekki hugsa til enda, að það tengist bara einstaklingum sem eru í þessum nefndum og hvers kyns þeir eru.

Förum yfir nokkrar lykiltölur í þessum málaflokki sem heyrast jú stundum. Karlar taka sitt eigið líf mun oftar en konur eða tvisvar til þrisvar sinnum oftar. Konur reyna oft líka sjálfsvíg en tekst það síður og eru kannski ekki jafn afgerandi í þeim aðgerðum sem betur fer. Langstærsti hópurinn í banaslysum í umferðinni á Íslandi eru karlar eða um 88%. Þeir bera líka meginþungann af banaslysum í starfi á öllum Norðurlöndunum. Þeir vinna sem sagt hættulegri störf. Ég veit ekki hversu oft þetta heyrist. Þeir falla oftar úr skóla, hafa færri menntagráður og eru minna læsir. Meiri hluti þeirra sem búa við heimilisleysi og húsnæðisöryggi eru karlar. Rannsóknir á Íslandi sýna meiri neyslu áfengis og fíkniefna hjá körlum en konum. Ég er ekki að reyna að fórnarlambsvæða karla. Ég er bara að benda á að það snýr líka vandi að körlum en hann er oft hálfósýnilegur. Lögheimili barna við skilnað er mun oftar hjá móður en föður og sum börn búa við daglega skerta umgengni við feður sína. Þeir standa líka oft verst efnahagslega í samfélaginu. Þetta er eitthvað sem er þvílíkt mein í samfélaginu þar sem að mínu mati er tilgangur lífsins að eignast börn og tengjast þeim og elska þau — að vera með einhverjum hætti fjarlægður frá þeim, þ.e. ef maður skilur við konu sína þá er miklu líklegra að lögheimilið endi hjá henni og maður tengist börnunum sínum minna, það er mjög vond tilfinning. Karlar eru yfirgnæfandi fjöldi fanga og fá stundum harðari dóma fyrir sömu afbrot og konur. Í aldurshópnum 16–24 ára eru piltar 23% fleiri en stúlkur sem óvirkir einstaklingar í samfélaginu, þ.e. án vinnu og ekki í skóla og stefna bara beint inn í einhvers konar örorku, þunglyndi og vanlíðan.

Hér er ég ekki að segja að konur geti ekki haft það slæmt. Ég er bara að benda á það að við erum hér með 40 aðgerðir og einungis tvær snúa að körlum. Karlmenn lifa að jafnaði þremur til fjórum árum skemur en konur á Íslandi. Ég hef því velt fyrir mér hvers vegna erindisbréf og íslensk lög passa ekki upp á að jafnræðis sé gætt og að málefni karla komist á dagskrá. Ég átta mig ekki á því hvað ræður, hvort þær hafi einhver áhrif eða hvort þær verði harðlega gagnrýndar. Ég hef bara fundið þetta í gegnum störf mín. Það er ekki þannig að drengjum sé lyft upp og þeir vaði bara áfram til einhvers frama, a.m.k. ekki í grunnskólanum. Svo sér maður að brottfall þeirra er miklu meira í framhaldsskólunum. Ég hef velt því fyrir mér að reyna að hvetja kynbræður mína til að taka meiri þátt í þessum málum án þess að vera að fórnarlambsvæða karla, því sem betur fer er Ísland hálfgerð jafnréttisparadís og staðan hvað varðar jafnrétti og jöfn tækifæri er mjög góð á Íslandi þannig að við megum heldur ekki tala þetta niður. Það hljómar kannski þannig í þessari ræðu að þetta sé allt einhver hörmung hjá körlum. Það er ekki þannig og ekki hjá konum heldur. Við sjáum það bara hver staða kvenna er á Íslandi. Þær eru í ofboðslega mörgum opinberum stjórnunarstöðum hingað og þangað sem er bara ágætt og ekkert að því, fyrir mér skiptir kynið ekki máli, fyrir mér skiptir það máli að þeir sem standa sig vel eigi rétt á framgangi, hinir síður. Það getur verið þreytandi að tilheyra einhverjum hópi eins og konur hafa örugglega gert í gegnum tíðina og hafa ekki fengið framgang út af því að þær eru að einhverju leyti jaðarsettar. Það þurfum við að laga og ekki bara fyrir konur heldur fyrir alla.

Þegar ég tala um jafnrétti og kynjajafnréttisáætlun þá myndi ég vilja að kastljósinu væri meira beint í átt að körlum og það yrði meira einblínt á þeirra mál því að þeir eru því miður, það er líklegast bara hormónalega tengt, ólíklegri til að tala um sín mál heldur en konur. Auðvitað eru menn að taka einhverja áhættu með því að tala um þessi mál, en það verður að tala um þau því að viðbrögðin sem ég sjálfur hef fengið við alls konar greinum sem tengjast föngum og tengjast drengjum, að þeir skipti ekki máli, hafa verið slík að ég sé mig knúinn til að halda áfram að hjálpa öllum þeim, hver sem það er, óháð kyni, að öðlast jöfn tækifæri í samfélaginu. — Ég hef lokið máli mínu.