framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir ræðuna. Mér fannst gott að hlusta á hana. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt þegar við náum að setja fram gagnrýni okkar á þann hátt að hún meiði engan. Ég bara fagna því og tek undir með hv. þingmanni að vinnan í allsherjar- og menntamálanefnd er með miklum ágætum og þarna er allt öndvegisfólk. Við tökumst á, við erum ekki sammála en erum samt sem áður fólk sem nær alveg að vinna saman og komast að einhverri niðurstöðu eða þá að ákveða það að vera með sitthvora niðurstöðuna. Engan hef ég hitt sem þekkir til hv. þm. Jóns Péturs Zimsens án þess að segja mér að hann sé frábær skólamaður og hafi sem slíkur, stjórnandi í skóla og kennari, komist ákaflega vel frá sínu starfi og ég held að það sé mikill akkur fyrir bæði Alþingi og ekki síst allsherjar- og menntamálanefnd að hafa slíkan mann innan sinna vébanda.
Hv. þingmaður nefndi vanrækslu. Ég held að vanræksla og áföll sem fólk verður fyrir á lífsleiðinni sé kannski það sem mótar viðkomandi og mótar hvernig hann upplifir sjálfan sig, ég held að það sé grundvallaratriði. En spurningin sem ég ætlaði að skilja eftir hérna í mínu fyrra andsvari er svo sem einföld og varðar bara það hvort þessi framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum sé nokkuð alvond. (Forseti hringir.) Það vantar kannski fleiri aðgerðir sem snúa að drengjum og körlum en eru samt ekki ágætisaðgerðir þarna?