framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir gott síðara andsvar. Sjálfur hef ég fengið töluvert mikið að heyra það að ég sé að tala drengi niður, ég sé að tala menntakerfið niður. Því svara ég þannig að það að ræða ekki raunveruleikann er vanræksla. Það er vanræksla við menntakerfið. Það eru 30% stúlkna og tæplega 50% drengja sem eru ekki með grunnfærni í lesskilningi eftir tíu ára grunnskólanám og tveggja til þriggja ára leikskólanám og hér eru leikskólarnir upphafnir og sagðir frábærir, sem ég held að sé rétt. Þannig að við erum að tala um 12–13 ára nám og 40% íslenskra barna hafa ekki grunnfærni í lesskilningi. Það að þegja um það væri hrein meðvirkni og vanræksla að mínu mati. Þess vegna blæs ég á það að ég sé að tala þetta niður. Auðvitað eru 60% nemenda með grunnfærni, en gleymum því ekki að við erum að miða við grunnfærni, að 60% slefi yfir það að hafa grunnfærni til að ná innihaldi texta sem er aðeins flókinn. Einungis 3% geta lesið flókinn texta og þar er gríðarlegt fall bara frá 2018. Þetta er ákveðinn raunveruleiki sem við verðum að horfast í augu við.
Hvað er til ráða? spyr hv. þm. Grímur Grímsson. Það er margt til ráða og um það hef ég skrifað ótal pistla. Það er ekki hægt að svara því í ræðu á Alþingi í einhverri einni setningu eða á 20 sekúndum vegna þess að þá verður það notað gegn þeim sem stendur hér og sagt: Hér eru skyndilausnir í gangi. Hann segir að þetta sé leiðin og við ættum að fara hana. Þess vegna ætla ég ekki að svara spurningunni beint en ég ætla samt að svara því þannig að ef ég væri menntamálaráðherra þá myndi ég treysta mér til þess, í samstarfi við samfélagið allt og foreldra, (Forseti hringir.) að snúa skútunni við því að það eru til leiðir og lausnir. Það hafa margir skólar á Íslandi sýnt það.