157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

faggilding o.fl. og staðlar og Staðlaráð Íslands.

220. mál
[21:04]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Kristján Þórður Snæbjarnarson ) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um faggildingu o.fl. og lögum um staðla og Staðlaráð Íslands. Með frumvarpinu sæta lög um faggildingu og fleira efnislegri endurskoðun í fyrsta sinn frá því lögin voru sett árið 2006. Breytingunum er einkum ætlað að færa lögin til samræmis við Evrópulöggjöf á sviði faggildingar sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn og innleidd í íslenskan rétt og að bregðast við athugasemdum Evrópusamtaka um faggildingu sem komu fram í jafningjamati sem faggildingarsvið Hugverkastofunnar, ISAC, gekkst undir í fyrra. Breytingarnar felast m.a. í því að markmiðsákvæði bætist við lögin. Skilgreiningar hugtaka eru uppfærðar og faglegt sjálfstæði ISAC styrkt.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og umsagnir bárust. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Í þeim umsögnum sem nefndinni bárust er tekið undir það markmið frumvarpsins að styrkja grundvöll faggildingarstarfsemi og mikilvægi þess að frumvarpið nái fram að ganga er áréttað. Í umsögnunum er jafnframt lögð áhersla á mikilvægi þess að starfsemi faggildingar og staðlaumsýslu sé fjármögnuð með viðunandi hætti. Það sé nauðsynlegt svo að standa megi undir því hlutverki sem faggildingu er ætlað, einkum þar sem hlutverk faggildingar fari vaxandi líkt og bent er á í umsögn Samtaka verslunar og þjónustu. Í umsögnum er jafnframt bent á að ótrygg fjármögnun og skortur á skýrri og opinberri stefnumörkun jafnt um starfsemi faggildingar og staðla valdi skorti á fyrirsjáanleika sem komi niður á starfseminni og valdi erfiðleikum við áætlanagerð og undirbúning verkefna.

Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að frumvarpið verði að lögum. Meiri hlutinn tekur jafnframt undir framangreind sjónarmið um nauðsyn þess að tryggja þessari starfsemi trausta fjármögnun og fyrirsjáanleika, svo sem með opinberri stefnumótun. Ekki verður séð að þær ábendingar sem komu fram í umsögnum um málið kalli á breytingu á því frumvarpi sem hér er til umfjöllunar en meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að taka ábendingarnar til skoðunar og eftirfylgni.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti hv. atvinnuveganefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálit meiri hluta atvinnuveganefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Lilja Rafney Magnúsdóttir, Eiríkur Björn Björgvinsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Ingvar Þóroddsson og Sigurjón Þórðarson. Ég vil að lokum þakka nefndarmönnum í hv. atvinnuveganefnd fyrir gott samstarf við vinnslu þessa máls. Hún hefur verið býsna góð. Það er auðvitað mikilvægt að gera þessa fyrstu breytingu á þessum lögum sem voru sett árið 2006 og aðlaga þau að þeim tíðaranda sem er í dag og þeim ábendingum sem hafa komið fram, eins og ég lýsti hér áðan.