157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

114. mál
[21:08]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Kristján Þórður Snæbjarnarson ) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 (skammtímaleiga, gagnaöflun og rekstrarleyfi). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum sem snúa að leyfisveitingum vegna sölu á heimagistingu í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og umsagnir bárust. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Málið er endurflutt en það var til umfjöllunar í hv. atvinnuveganefnd á 156. löggjafarþingi. Frumvarpið var afgreitt til 2. umræðu 24. júní 2025 með áliti meiri hluta nefndarinnar á þskj. 805 í máli 279 en hlaut ekki lokaafgreiðslu við þinglok. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er það lagt fram óbreytt, þó með tveimur tæknilegum breytingum sem meiri hlutinn lagði til í áliti sínu á fyrra þingi.

Meiri hlutinn vísar í umfjöllun og áherslur sem fram koma í áðurnefndu áliti frá síðasta löggjafarþingi auk eftirfarandi atriða: Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega að nefndin fjallaði um tekjumark skráningarskyldrar heimagistingar skv. 3. gr. laganna en viðmiðið er að finna í lögum um virðisaukaskatt og er nú 2 millj. kr. Tengingin við virðisaukaskattslög var lögð til í breytingartillögu atvinnuveganefndar við 3. umræðu 457. máls á 145. löggjafarþingi og sagði í framsögu málsins við það tilefni að breytingin væri lögð til svo að upphæðin myndi taka mið af verðlagshækkunum. Þá þyrfti ekki að breyta upphæðinni með sérstakri lagabreytingu árlega. 2 millj. kr. viðmið 3. töluliðar 4. gr. laga um virðisaukaskatt hefur haldist óbreytt frá árinu 2016 en hækkun á verðlagi frá þeim tíma hefur verið umtalsverð, eða rúm 50%. Beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins að kannað verði hvort tilefni sé til þess að uppfæra fjárhæðina í takt við verðlagsþróun.

Þá fjallaði nefndin um heimild sveitarfélaga til aukins svigrúms þegar kemur að heimildum til einstaklinga til að leigja út aðra eign sína en lögheimili innan þéttbýlis til skamms tíma. Er það mat meiri hlutans að mikilvægt sé að fram fari mat á því hvort unnt sé að færa ákvörðunarvald hvað þetta varðar til sveitarfélaga að vissum skilyrðum uppfylltum án þess þó að um sérstaka leyfisveitingu stofnunar væri að ræða. Leggur meiri hlutinn því til að kannað verði hvort unnt sé að koma við hlutlægum viðmiðum sem kveði á um við hvaða aðstæður sveitarfélag geti heimilað heimagistingu í fleiri en einni eign innan þéttbýlis, t.d. út frá stöðu á fasteignamarkaði, hlutfalli íbúða í sölumeðferð, þrýstingi á leigumarkað og leiguverði og verðlagsþróun. Beinir meiri hlutinn því til ráðherra að fýsileiki slíkrar útfærslu verði kannaður og eftir atvikum lagðar til viðeigandi breytingar á lögum.

Meiri hlutinn leggur til tvær breytingar sem eru tæknilegs eðlis og er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif og leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum.

Undir nefndarálit meiri hluta atvinnuveganefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Lilja Rafney Magnúsdóttir, Eiríkur Björn Björgvinsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Ingvar Þóroddsson og Sigurjón Þórðarson.

Frú forseti. Hér er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að gera það sem við sögðumst ætla að gera í kosningabaráttunni. Íbúðarhúsnæði á fyrst og fremst að nýtast sem heimili fólks, ekki sem fjárfestingarvara fyrir efnameiri. Við höfum nú þegar tekið á skráningarskyldu leigusamninga íbúðarhúsnæðis og hér stígum við mikilvægt skref sem hefur jákvæð áhrif á framboðshlið húsnæðis til búsetu. Það er rétt að hafa það í huga að áfram verður heimilt að leigja eigin íbúð sem einstaklingar hafa lögheimili í til skamms tíma.

Ég vil ítreka það sem meiri hluti hv. atvinnuveganefndar bendir á í þessu nefndaráliti, að fjárhæðir sem skilgreindar eru í lögum um virðisaukaskatt og hafa staðið í 2 millj. kr. um langt skeið verði endurmetnar eða alla vega rýndar. En þá tel ég samt sem áður mikilvægt að stíga varlega til jarðar enda geta róttækar breytingar haft ófyrirséð áhrif hvað varðar verðlagningu leiguhúsnæðis og þá samkeppni sem er á leigumarkaði hér á landi. Það er mjög mikilvægt að við tryggjum að íbúðir fái það hlutverk sem þeim er ætlað, að vera heimili fólks. Það er að sjálfsögðu gríðarlega mikilvægt og gott að við séum að stíga það skref hér til að bæta stöðu leigjenda á fasteignamarkaði.