157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

114. mál
[21:15]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Mig langar til að forvitnast, af því að ég fylgdist aðeins með hérna í 1. umræðu og þar voru umræður um að ef sú staða væri uppi að þú værir búsettur í dreifbýli og ættir síðan íbúð í þéttbýli — við getum t.d. nefnt að í mínu tilfelli myndi ég búa úti á landi og ætti íbúð í Reykjavík sem ég gæti t.d. nýtt fyrir krakkana mína ef þeir væru í skóla og sinntu hér námi og ég lít þannig á að það væri hægt að leigja út íbúðina þegar börnin væru ekki í skólanum, yfir sumartímann. Er það réttur skilningur minn, af því að ég veit að þetta var nefnt í 1. umræðu, að þetta hafi ekki verið skoðað sérstaklega eða að þessu hafi hreinlega ekki verið breytt þannig að það sé mismunur á þeim sem búa í dreifbýlinu miðað við þá sem búa heima í þéttbýlinu?