veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir andsvarið og býsna góða spurningu um þetta mál. Það er rétt sem hann segir, eins og ég kom inn á og kemur fram í nefndarálitinu, að frumvarpið gengur út á það að taka á þeim vanda sem blasir við, fyrst og fremst í þéttbýli og víðs vegar um landið. Það er ekki bara hér á höfuðborgarsvæðinu, það er skortur á íbúðarhúsnæði víðs vegar í þéttbýli um landið og hefur það verið ákveðið vandamál að mörgu leyti á undanförnum misserum. Sem betur fer er sótt í það að búa víða um landið og því ber að fagna. En ef einstaklingur býr í dreifbýli, sem sagt ekki í þéttbýli hvort sem það er úti á landi eða hvar, þá gildir það sama og hjá öðrum sem búa í þéttbýli, að einstaklingur getur ekki leigt út íbúð sem er í þéttbýli. Það er ekki lögð til breyting á þessu atriði í nefndaráliti meiri hlutans. Við teljum mjög brýnt að rýna í þá stöðu og tryggja að húsnæðið sé aðgengilegt og út á það gengur þetta mál. Það er sem sagt ekki gerð breyting á hvað þetta varðar.