varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Hanna Katrín Friðriksson verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá Eydísi Ásbjörnsdóttur um að hún verði fjarverandi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi sem varaþingmenn fyrir þau 3. varamaður á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Eva Pandora Baldursdóttir, en varaþingmenn ofar á lista hafa boðað forföll, og 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, Sindri S. Kristjánsson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.
Eva Pandora Baldursdóttir og Sindri S. Kristjánsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.