hækkun skatta og gjalda.
Frú forseti. Hér um daginn þegar ég reyndi að vara hæstv. fjármálaráðherra við því hvaða afleiðingar stefna ríkisstjórnarinnar myndi hafa á verðbólgu og vexti spurði hæstv. ráðherra hvort ég byggi yfir einhvers konar kristalskúlu að geta séð það fyrir að verðbólga myndi hækka sem afleiðing af stefnu ríkisstjórnarinnar. Það þurfti ekki kristalskúlu til og nú er raunveruleikinn búinn að birtast og blasir við okkur. Þá vekja viðbrögð ríkisstjórnarinnar athygli og raunar undrun. Hæstv. ráðherrar, ekki hvað síst hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra með honum, virðast með öllum ráðum reyna að beina athyglinni að atvinnurekendum; kenna þeim um verðhækkanirnar og segja þeim að hafa sig hæga.
Það er alveg ný nálgun að í fyrsta lagi skuli hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra ekki gera sér grein fyrir því að það hafi áhrif á verðlag þegar ríkið fer á undan með fordæmi og hækkar skatta og gjöld á fyrirtæki, og raunar eykur ríkisútgjöld stórkostlega um leið, að það hafi áhrif á verðlagið í framhaldinu. En hæstv. forsætisráðherra bætti um betur í viðtali á Bylgjunni í morgun og kastaði sprengjum í allar áttir, þ.e. reyndi að kenna öllum öðrum en ríkisstjórninni um þær ógöngur sem ríkisstjórnin er komin í með stjórn efnahagsmála. Ég spyr hæstv. ráðherra: Telur hann að það sé hægt að hækka endalaust skatta og gjöld á fyrirtæki, krefjast þess af þeim að þau hækki svo ekki sitt verð og láti undan því. Hverjar verða afleiðingarnar með hærri vöxtum? Hverjar verða afleiðingarnar á verðmætasköpun(Forseti hringir.) í samfélaginu og fyrir vikið á tekjur ríkisins? Telur hæstv. fjármálaráðherra þetta raunhæfa leið; að ríkið hækki og hækki gjöld og svo nánast hóti fyrirtækjum að þau skuli ekki láta þessi gjöld renna út í verðlagið?