157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

hækkun skatta og gjalda.

[15:08]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég held að það hljóti að vera nóg komið af þessari nálgun hæstv. fjármálaráðherra að birtast hér ítrekað eins og einhvers konar háskólaprófessor sem er að reyna að útskýra fyrir fávísum nemendum hvernig hlutirnir ganga fyrir sig, sérstaklega í ljósi þess að nú hefur hæstv. fjármálaráðherra haft rangt fyrir sér ítrekað um hvað stefna hans myndi hafa í för með sér á meðan að margir hv. þingmenn hafa bent á hver raunveruleikinn væri og hverjar afleiðingarnar yrðu. Og að ríkisstjórnin skuli nú birtast með þeim hætti að hún reyni að gaslýsa almenning eftir að raunveruleikinn er kominn í ljós og beita hótunum. Hæstv. forsætisráðherra sagði í viðtali í morgun að setja þyrfti pressu á alla til að virða þá vegferð sem stjórnvöld eru á. Nú boðar hæstv. ríkisstjórn, og væntanlega þá með samþykki hæstv. fjármálaráðherra, að sett verði pressa á alla aðra til að bæta upp fyrir skattahækkanir ríkisins. Af því að hæstv. ráðherra talar um að finna jafnvægi: Telur hæstv. fjármálaráðherra enn þá að það sé leið að því að finna jafnvægi í ríkisfjármálum að auka ríkisútgjöld um 143 milljarða milli ára?