157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

hækkun verðbólgu og vaxta.

[15:21]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir spurninguna og tek undir hennar áhyggjur af verðbólguþróun. Þessu hef ég ítrekað lýst yfir og tek undir hvert orð. Það er forgangsmál að vinna á verðbólguvæntingum. Það er hins vegar þannig að þau verkfæri sem ríkinu standa til boða til að stýra eftirspurn og verðbólguvæntingum snúast fyrst og fremst um langtímastefnumörkun ríkisins varðandi jafnvægi í ríkisrekstri og það að sýna nægilegt aðhald.

Ég hef farið yfir það hér að þegar ríkisstjórnin lagði fram fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 á síðasta ári var nokkuð kvartað yfir því hversu aðhaldssöm sú nálgun væri. Við höfum síðan haldið okkur við þá nálgun og ég get glatt hv. þm. Ingibjörgu Isaksen með því að þeirri vegferð munum við halda áfram. Fjármálaáætlun verður lögð fram núna síðar á þessu ári eða þessu vori og hún mun einmitt undirstrika hversu alvarlega við tökum þetta verkefni og undirstrika það einarða markmið okkar að ná hallalausum fjárlögum á árinu 2027, í fyrsta skipti frá 2019.