157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

fjármögnun innviðaframkvæmda.

[15:27]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Við erum svo sannarlega að bæta í og við gerðum það núna í sumar, bættum sérstaklega 2 milljörðum í aukið viðhald, sem mæltist mjög vel fyrir, á Vesturlandi og Suðurlandi og víðar um landið. Undanfarin ár hafa 12–13 milljarðar verið settir í viðhald á vegakerfinu. Við erum að fara í 17,5 milljarða í ár og eftir það förum við í 20 milljarða á ári. Það er gríðarleg aukning, úr 12–13 milljörðum í 20 milljarða. Það er gríðarleg aukning og þarna eru veiðigjaldspeningarnir að sanna sig. Við erum að stórauka viðhald og við erum að stoppa viðhaldsskuldina. Við erum líka að fara í framkvæmdir eins og fyrir austan, 800 millj. kr. í hringtorg á Egilsstöðum sem er líka tilfærsla á vegi. En við erum líka að fara í fleiri framkvæmdir og við ætlum að stöðva kyrrstöðuna í jarðgangamálum. Hvernig ætlum við að fjármagna það? Við stefnum á að gera það með innviðafélagi. Varðandi vetrarþjónustuna þá erum við að bæta í hana, á árunum 2026–2030 bætum við við 14 milljörðum kr., sem er hækkun miðað við samgönguáætlun 2023 og loksins er vetrarþjónusta fullfjármögnuð. Við erum svo sannarlega að bæta í.

Varðandi Hafnabótasjóð þá er vissulega Covid-peningurinn, það framlag, að hætta núna. Við erum að halda áfram með þeim hætti að ekki allar framkvæmdir fá 60% hluta frá ríkinu heldur verður miðað við fjárhagsstöðu hverrar hafnar fyrir sig. Það munum við fara í á næsta ári. Það stendur í lögunum „allt að 60%“, en í framtíðinni verður það allt að 40%, allt að 50% og allt að 60% eftir fjárhagsgetu hafnanna.