157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

umræða um strandveiðar.

[15:43]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Ég kem hér upp til að hrósa hæstv. forseta fyrir fundarstjórn og vekja athygli á því að hér hafi hv. þm. Sigurjón Þórðarson komið upp til að ræða strandveiðar og í engu vikið að fundarstjórn hæstv. forseta. Á undan honum hafði þó talað hv. þm. Bergþór Ólason en ég vek athygli á því að í athugasemdum sínum benti hv. þm. Bergþór Ólason á atriði sem er mjög mikilvægt og ég hef áður hvatt hæstv. forseta til að skoða og það er sá vandi sem við hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar eigum í við að fá hæstv. ráðherra til að svara þeim spurningum sem beint er til þeirra. Ef óundirbúinn fyrirspurnatími til ráðherra á að gera eitthvert gagn þá þurfa hæstv. ráðherrar, helst undir leiðsögn eða hvatningu hæstv. forseta, að gera a.m.k. tilraun til að bregðast við þeim spurningum sem til þeirra er beint.