umræða um strandveiðar.
Frú forseti. Í ljósi orða forseta hér áðan þá langar mig bara að benda forseta á að skoða upptöku eða lesa útprentun af þeim samtölum sem áttu sér stað hér við forseta því það var eðlilegur inngangur að beiðni hv. þm. Bergþórs Ólasonar til forseta, það þurfti aðeins útskýringu til að skýra hvað hann var að biðja um. Hitt er svo annað mál að ég get tekið undir með frú forseta hvað það varðar að hv. þm. Sigurjón Þórðarson sem brást við ummælum hv. þm. Bergþórs Ólasonar vék í engu að fundarstjórn forseta.