157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[15:45]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þessi þingsályktunartillaga er komin hér fyrir þingið með vísan til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem kveður á um skyldu ráðherra til að leggja fram þingsályktunartillögu sem þessa. Ég held að í ljósi þessarar þingsályktunartillögu þá ætti það kannski að vera tilefni fyrir þingheim og ríkisstjórn til að velta því fyrir sér hvort það sé kominn tími núna til að endurskoða þetta ákvæði og þessa skyldu sem lögin kveða á um þessa þingsályktunartillögu. Hér liggja fyrir tillögur í 40 liðum um alls konar og margt af því er nú það sem kalla mætti sjálfsögð dagleg verkefni í stjórnsýslunni, mætti kannski kalla það það. Önnur kveða á um ýmiss konar nýstárleg verkefni. Það er afleitt að setja þingmenn í þá stöðu að greiða hér atkvæði um þingsályktunartillögu sem þessa í heilu lagi. Það er þess vegna sem ég hef óskað eftir því við forseta að það verði greidd atkvæði um hverja tillögu fyrir sig.