157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[15:59]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Til að liðka fyrir þingstörfum hafði ég hugsað mér að sleppa því að koma hér upp til að fjalla um atkvæðagreiðsluna í heild. En þá mætti hér til leiks hv. þm. Dagur B. Eggertsson og sannaði svo um munaði hvers vegna það er mikilvægt að ræða innihald þessa máls og raunar hinna ýmsu mála annarra. Þetta mál í 40 liðum krefst þess að það sé fjallað um hvert tilvik fyrir sig, eða ætla menn bara hér eftir að fara að greiða atkvæði um til að mynda fjárlög í heild? Nei, hér eru fjölmargir ólíkir liðir og ef við ætlum að ráðast í raunverulegar aðgerðir sem skipta máli þá þarf að ræða innihaldið. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson kom hér upp og spurði: Er það virkilega svo að við ætlum ekki að virða konur og stúlkur? Þetta var aumt. Ég verð að segja alveg eins og er: Þetta var aumt, því að þetta var bara enn ein tilraunin til að fá mál í gegn hér á grundvelli umbúða og stundum yfirlýstra markmiða og líta fram hjá innihaldinu og raunverulegum áhrifum þeirra mála.