framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegur forseti. Ég tek undir það sem hv. þm. Ingibjörg Isaksen sagði hér um málið fyrir hönd okkar í Framsókn. Það sem vakti fyrir mér var að koma hér upp og tala við forseta og þingmenn um það að hér liggur fyrir þingsályktunartillaga í 40 liðum og ef við erum að fara að greiða atkvæði um hverja og eina þar — þetta er ekki það sama og þegar við greiðum atkvæði um fjárlög því það eru heimildir sem byggjast á samþykktum þingsins á meðan þingsályktun er eitthvað sem framkvæmdarvaldið þarf að vinna eftir. Það getur vel verið að næsta mál, sem er neytendamál, verði býsna flókið líka ef við tökum fyrir hvern einasta lið. En það verður fyrst flókið þegar við förum í samgönguáætlun þegar það kemur í ljós hver er raunverulegur vilji hvers einasta þingmanns til hvers einasta máls sem þar verður lagt fram. Ég beini því til forseta að taka þetta mál til umfjöllunar meðal þingflokksformanna og forsætisnefndar af því að ég sé ekki hvernig við afgreiðum þingsályktunartillögur úr þinginu framar.