157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:07]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það vekur nokkra undrun — og ég tek undir það með hv. þm. Sigmari Guðmundssyni að þessi ferill sem málið stefnir í núna kemur á óvart. Fyrir ekki svo mörgum árum var jafnréttisáætlun samþykkt og gott ef það voru ekki 61 af 63 þingmönnum sem samþykktu hana. Þá voru ákvæðin fjölmörg, á þriðja tug. Það væri áhugavert að fá það fram, í þeirri löngu umræðu og atkvæðagreiðslu sem fer fram á eftir, hvað hefur breyst. Hvað hefur breyst núna? Var Miðflokkurinn svona „woke“ eða er hann allt í einu núna að átta sig á hlutunum? Þá var Miðflokkurinn meira og minna með því að greiða atkvæði í heilu lagi með umræddri jafnréttisáætlun. Þess vegna finnst mér það svolítið undarlegt að menn séu hér að gera stórmál og flækja atkvæðagreiðslu um mál sem er að miklu leyti samhljóða fyrri málum. Það væri áhugavert að Miðflokkurinn skýrði frá því hver eðlismunurinn er á þessari jafnréttisáætlun og þeirri sem var samþykkt af flokksmönnum fyrir nokkrum árum síðan.