framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegur forseti. Hér er kveðið á um stofnun einhvers konar skúffusjóðs ráðherra upp á heilar 48 millj. kr. Afar ógagnsætt er hvernig á að veita úr þessum sjóði en það kann að vera að það standist allt og sé allt saman málefnalegt. Það hefði í sjálfu sér komið til greina að styðja þessa tillögu sérstaklega en það er hins vegar ákveðinn skortur á gagnsæi. Og í ljósi þess að hér er kveðið á um 48 milljónir í þennan skúffusjóð ráðherra sem ráðherra sjálfur getur ráðstafað að eigin vild þá er það há fjárhæð í samanburði við síðan allar hinar 39 tillögurnar sem hér er kveðið á um, sem eru upp á nokkrar milljónir, sumar hverjar, aðrar ekki. Þannig að þetta dregur fram ógagnsæi í þessu öllu saman og Miðflokkurinn situr hjá við atkvæðagreiðslu um þennan lið.