157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:17]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa hér inngangsorð þessarar greinar:

„Samningur Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum verði markvisst kynntur. Útbúið verði kynningarefni um samninginn ætlað almenningi á íslensku, ensku og á auðskildu máli. Þá verði haldinn kynningarfundur um samninginn með samtökum kvenna sem standa vörð um réttindi kvenna.“

Frú forseti. Ísland er, eins og menn þreytast ekki á að minna á í þessum ræðustól, í fararbroddi í jafnréttismálum og mætti stundum hafa meiri áhrif innan Sameinuðu þjóðanna hvað það og annað varðar. En í mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna eigum við sæti ásamt fjölmörgum öðrum ríkjum sem fæst, ef nokkurt, komast nálægt Íslandi á sviði jafnréttismála og sum í öfugum enda. Er ástæða til að verja 3 milljörðum kr. í að auglýsa (Forseti hringir.) Sameinuðu þjóðirnar í þessu efni. Ég held að það sé ekkert til tjóns, frú forseti, en ég á erfitt með að greiða atkvæði með því (Forseti hringir.) og greiði því ekki atkvæði.