157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:21]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Inntak þessa 3. liðar er auðvitað alveg með ólíkindum. Er það raunverulega vilji þessa sals að fara að senda alla frambjóðendur til sveitarstjórna og þá sem hljóta kjör í sveitarstjórnum hringinn í kringum landið á einhvers konar námskeið í samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða fyrir kjörna fulltrúa og stjórnendur sveitarfélaga? Ég tek undir orð hv. þm. Snorra Mássonar, ég held að Vinstri grænir séu enn á þingi. Ég hélt að þeir hefðu ekki náð kjöri í síðustu kosningum. (Mennrh.: Píratar eru þá … [Hlátur í þingsal.]) Eitt rokkstig til ráðherra fyrir góðan húmor.

Frú forseti. Hér er einmitt komið dæmi um það af hverju þarf að greiða atkvæði hér í sérliðum en ekki um málið í heild.