157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:32]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Ég kem hér upp bara til að vekja á því athygli að ég skildi umræðuna fyrst þannig að Miðflokkurinn vildi „splitta“ upp þessari afgreiðslu því að það væri svona eitt og annað sem hann gæti ekki sætt sig við en mér sýnist Miðflokkurinn vera á gulu og rauðu í nánast öllum málum nema þeir eru til í að telja hvað það eru margir karlar og konur í nýsköpunarfyrirtækjum. Það er einhvern veginn ásættanlegt en þegar kemur að íþróttum eða öðrum sviðum mannlífsins þá er sú íhlutun ekki nægilega góð. En ég styð alla vega þennan lið.