157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:40]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Þetta er þriðja mælaborðið sem þessi ríkisstjórn ætlar að setja í gang. En í þessu mælaborði á að mæla jafnframt hvernig gengur með jafnlaunavottunina hjá sveitarfélögum. Var þessi ríkisstjórn ekki að tala um að afnema eða breyta þessu jafnlaunavottunarbixi? Samt ætlar hún að búa til mælaborð núna um þessa jafnlaunavottun. Ég tel það algjöran óþarfa að vera að búa til mælaborð um jafnlaunavottun sem er á leiðinni út þannig að ég er á móti þessari tillögu.