framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegur forseti. Við erum framarlega á sviði jafnréttismála, segir fólk, en við skulum samt ekki mæla eða þróa einhverja mælikvarða um það. Ég er reyndar að reyna að átta mig á því að áðan greiddi Miðflokkurinn atkvæði með því að kynjahlutfall í nýsköpunargreinum væri talið sérstaklega — það var góð hugmynd en þegar kemur að sveitarstjórnarstigi þá er það vond hugmynd og svo þegar kemur að landbúnaði er það líka vond hugmynd. Ég er svona að reyna að spá fyrir um hvernig atkvæðagreiðsla um næstu tillögu, nr. 15, verður út frá þessum upplýsingum. Ég veðja á að þau verði á rauða takkanum líka en hinar tvær útgáfurnar kæmu mér svo sem ekki á óvart heldur.