framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Það er ærið tilviljanakennt hvaða atvinnugreinar lenda innan þessa nets ríkisstjórnarinnar. Af hverju er hér ekkert um kynjagreiningu í múrverki eða hárgreiðslu? Hér er verið að leggja til söfnun kyngreindra tölfræðigagna í sjávarútvegi. Ég ímynda mér að þetta hafi verið gert í gríðarlega yfirgripsmikilli vinnu undir merkjum Auðlindarinnar okkar á þarsíðasta kjörtímabili. Þetta ber allt merki þess að verið sé að reyna að teygja upp fjölda krossanna sem hægt er að haka við í þessari vinnu. Þetta er held ég viðlíka sýndarmennska. Gögnin eru til en þetta er viðlíka sýndarmennska eins og ef menn væru hér á Alþingi, við sem hér sitjum, að leggja til talningu á því hvers kyns þeir eru sem stunda sérstakar iðngreinar. Við vitum að yfirgnæfandi meiri hluti múrara er karlar. Við vitum að yfirgnæfandi meiri hluti hárgreiðslukvenna er konur [Hlátur í þingsal.] — hárgreiðslumenn eru þarna líka. Þetta er einhver óþarfi. Við eigum ekki að teygja jafnréttisumræðuna í þessa átt.