framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég hef grun um að allir hv. þingmenn, þar með talið hv. þm. Pawel Bartoszek, geri sér grein fyrir því hvað er um að ræða hérna. Menn hafa sest niður til að skrifa þessa framkvæmdaáætlun og langað að komast upp í alla vega 40 liði. Þá er eitt og annað tínt til, eins og það sem hér er lagt til, og reyndar í fleiri liðum, um að setja sérstaka styrki, setja peninga — ég safnaði upplýsingum sem þegar eiga að liggja fyrir og vera aðgengilegar, hægt að fá bara með einfaldri fyrirspurn þingmanns hér í þinginu — en tilgangurinn með því að setja nokkrar milljónir í þetta er að því er virðist vera að gera eitthvað, virðast vera að taka á málunum. Þannig á núna að leggja peninga í að telja sjómenn og flokka þá eftir kynjum. Það má velta fyrir sér sömu nálgun í öðrum áætlunum eða tillögum, eins og samgönguáætlun fyrrnefndri. Mætti ekki stækka hana með því að setja þrjár milljónir í að gera Vegagerðinni kleift að vera með vefsíðu eða er Vegagerðin þegar með vefsíðu, frú forseti? Já, líklega, (Forseti hringir.) rétt eins og þessar tölur liggja þegar fyrir.