framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegur forseti. Ég vildi vekja athygli á þessu mikilvæga og góða verkefni. Þegar Reykjavíkurborg, undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, þáverandi borgarstjóra, lét fyrst meta kynbundinn launamun kynjanna hjá borginni var það líklega gert í fyrsta skipti á Íslandi. Hann mældist 22% hjá borginni. Virðismatskerfi sem borgin hefur innleitt síðan hefur verið ein lykilleiðin að því að núna mælist þessi munur enginn. Hann mælist enginn vegna þess að það er búið að leiðrétta ómálefnalegan launamun kynjanna. Það er sérstakt fagnaðarefni að ríkið ætli núna að taka þetta upp í meira mæli, auðvitað í samvinnu við verkalýðshreyfinguna eins og þarf að gera, því að þetta hefur skilað árangri á heimsmælikvarða hjá Reykjavíkurborg.