157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[16:54]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er ástæða til að hrósa hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að hafa endurskoðað jafnlaunavottunarkerfið. Það var nú gert á þinginu eða hefur verið til þinglegrar meðferðar hér. En svo langt sem það nær, þ.e. hrósið, og betur má ef duga skal. Staðan er sú í dag að það hefur vissulega verið dregið úr jafnlaunavottunarkerfinu, þ.e. þetta verkefni einkaaðila, sem hafa haft miklar tekjur og vinnu af því að reikna þessa jafnlaunavottun út fyrir fyrirtæki, hefur bara verið fært til stjórnvalda. Það liggur áfram sú kvöð, eins og mara, á atvinnulífinu að skila inn endalausum gögnum til stjórnvalda sem ekki hefur í rauninni komið fram enn um hvernig með skuli fara og hvað menn ætli að gera við þessi gögn. Ég hvet hæstv. dómsmálaráðherra til að ganga lengra og ef þessi tillaga um endurskoðun á jafnlaunavottunarkerfi má verða til þess að opna augu manna fyrir bullinu sem hefur átt sér stað í þeim efnum þá styðjum við í Miðflokknum þessa tillögu.