framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Það er gott og blessað að rannsóknir eins og þessar séu framkvæmdar og rannsókn eins og þessi var grundvöllur fyrir því að við gátum sýnt fram á það hér í þinginu, með því að toga það út með töngum, að það reyndist enginn mælanlegur munur vera á milli þeirra sem höfðu hlotið þessa svokölluðu jafnlaunavottun og þeirra sem höfðu ekki hlotið hana. En eins og ég kom inn á í byrjun um atkvæðagreiðsluna þá geri ég athugasemd við þessi fjárútlát sem fylgja þessum tillögum, þessi gríðarlegu fjárútlát. Einhverjum kann að þykja þetta ekki vera stórir fjármunir í stóra samhenginu en 5 millj. kr. hér og 5 millj. kr. þar, það er það sem ég geri athugasemd við.