157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[17:01]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Já, ég get stutt þessa tillögu þótt vafalaust megi leggja það til að rannsóknin fari einfaldlega líka fram á launamun innfæddra karla og innflytjendakarla, eins og það væri þá orðað, bara innflytjenda og innfæddra. Hingað hefur streymt fólk einkum úr Evrópu og víðar að og þetta hefur haft gífurleg áhrif á íslenskan vinnumarkað. Þetta breytir öllu jafnvægi í launaþróun, hefur auðvitað mikil áhrif á kjör innfæddra ef þú lítur þannig á að þarna koma stórir hópar inn á vinnumarkað sem eru tilbúnir að vinna vinnuna fyrir minni peninga. Það er auðvitað að hluta til markmiðið með þessu og mikils um vert að reyna að fá það fram hver staða þessara hópa er og verður auðvitað ekki horft fram hjá því að margir þessara innflytjenda vinna fyrir lág laun. Það virðist vera bara talið æskilegt á ýmsum sviðum. Það er fyrirkomulagið sem við lifum við. Það virðist ekki vera vilji fyrir að breyta því heldur (Forseti hringir.) flytja hérna inn áfram fólk til að vinna láglaunastörfin og úttekt á þeirri þróun er sjálfsögð.