framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Þetta er síðasta tillagan í C-kafla. Ég hefði haldið að fyrsta tillagan um virðismatskerfið hefði dugað, sem var reyndar fjármögnuð innan fjárheimilda enda settar 100 millj. kr. í að ráða sex manns í þá vinnu og gert í samstarfi síðustu ríkisstjórnar við aðila vinnumarkaðarins. Ég er stoltur af því að við höfum farið þá leið og átti erfitt með að skilja atkvæðagreiðsluna hér áðan hjá sumum fyrrum félögum mínum. Hins vegar getur maður líka spurt sig, og ég styð auðvitað þessa tillögu og held að hún sé mikilvæg: Af hverju er verið að setja peninga til dómsmálaráðuneytisins til að rannsaka alls konar svona hluti þegar augljóslega er verið að gera það annars staðar? Ég veit að Hagstofan kallar alltaf eftir peningum þegar hún er beðin um að gera eitthvað, sem mér finnst sérkennilegt af því að þar vinnur jú fullt af fólki við að gera nákvæmlega þetta. En ég velti því fyrir mér af hverju var ekki rannsakaður t.d. launamunur kvenna á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni, sem ég veit að er mikill, ef það er verið að kalla eftir svona upplýsingum? Ég held að það hefði verið hægt að halda áfram endalaust með svona tillögur. (Forseti hringir.) En ég átta mig ekki alveg á því til hvers er verið að setja þessa fjármuni til dómsmálaráðuneytisins og spyr: Er þetta fjármagnað í fjárlögum ríkisstjórnarinnar?