framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegur forseti. Þá erum við komin að kafla D sem fjallar um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi. Ég leyfi mér að segja að það er nú ólíku saman að jafna, þessum kafla eða öðrum köflum í þessari þingsályktunartillögu, og full ástæða til að styðja þær tillögur sem falla undir þennan kafla. Í rauninni mætti segja nánast allar tillögurnar í þessu því að hérna liggur lífið við, má segja, í þessum málaflokki. Það er svo sem hægt að nefna það líka að auðvitað eru þetta viðvarandi verkefni lögreglu og réttarkerfisins sem ættu að vera fjármögnuð, en allt að einu þá er alveg örugglega full ástæða til þess að rýna þennan málaflokk reglulega og með þeim hætti sem hér er lagt til.