framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Herra forseti. Hér er enn ein tillagan um að gera eitthvað sem þegar er verið að gera. Eins og segir í tillögunni er þetta, með leyfi forseta:
„Til þess að tryggja að jafnréttisfræðsla sé fléttuð inn í kennslu á öllum skólastigum, sbr. 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, verði gæðaviðmið við mat á starfi leik-, grunn- og framhaldsskóla og frístundastarfi grunnskóla endurskoðuð. Þannig verði stuðlað að markvissri jafnréttisfræðslu samkvæmt aðalnámskrám. Jafnframt verði gert ráð fyrir úttekt á jafnréttisfræðslu í þriggja ára áætlun mennta- og barnamálaráðuneytis.“
Svo er hér ítrekað: „Markmið aðgerðarinnar verði að flétta jafnréttisfræðslu inn í kennslu á öllum skólastigum.“
Hvað á maður að segja við þessu, herra forseti? Við höfum þegar séð að það sem kallað er jafnréttisfræðsla hefur verið notað til að innræta eitt og annað sem er kannski utan við hefðbundinn skilning á jafnrétti. Þó vill maður ógjarnan vera á móti þessu og verður bara að vona að þessi endurskoðun á þriggja ára tímabili leiði til þess að þessi fræðsla verði bætt. Ég held reyndar, herra forseti, að það sé óþarfi að skylda skóla til að kenna doktorsnemum eitthvað um jafnréttismál.