framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegur forseti. Eins og ég gat um í umræðunni um þetta mál á fyrri stigum þá er sú staða komin upp sums staðar að það er skylda að fara í svokallaða kynjafræði til að klára framhaldsskóla en margir komast hjá því t.d. að sitja svo mikið sem einn áfanga um Íslandssögu, þannig að eitthvað er öfugsnúið í forgangsröðuninni. Um hvað snýst þessi kynjafræði? Það mætti halda langar tölur um það. Hún snýst ekki alltaf bara um jafnrétti. Að mörgu leyti snýst þetta um að steypa öllum í sama mót og m.a. að brjóta niður karlana, sem hefur tekist á ýmsum sviðum eins og sést, að kenna þeim að skammast sín fyrir karlmennsku og kalla hana eitraða og annað eins. Svo er trans hugmyndafræðin auðvitað inni í þessu, að kynin séu 70 en ekki tvö og að menn geti bara ákveðið af hvoru kyninu þeir eru, það fléttast líka inn í kynjafræðina. Svo heyrir maður af því að í íslenskum framhaldsskólum hafa komið upp tilvik þar sem mönnum er liggur við hreinlega vikið úr starfi fyrir að taka ekki þátt í þessari nýstárlegu hugmyndafræði allri. Þannig að gera þetta að lagaskyldu um allt land, það mun ég ekki skrifa upp á.