framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Hér bætist við þriðji liturinn á töfluna þegar kemur að málaflokkum og jafnréttisafstöðu Miðflokksins. Það var grænt þegar kemur að nýsköpun, rautt þegar kemur að landbúnaði og sjávarútvegi en gult þegar kemur að íþróttum og örugglega góð rök fyrir þessu öllu saman. Ef fólk hefur áhuga og áhyggjur af launamun einhvers staðar, þá er það vitað og þekkt að launamunur í íþróttum er töluvert mikill. Ég held að ég sjái ekkert því til fyrirstöðu að við rýnum þau mál og ef það er hægt að fá peninga frá Evrópu til að taka þátt í því samstarfi þá sé ég heldur ekki neitt að því.